Parafimi og slaktaumatölt í Suðurlandsdeild Eques
Sigurvegarar í Parafimi á síðasta tímabili voru þau Ólafur Þórisson og Sarah Maadgaard Nielsen.
Þriðjudagskvöldið 24.febrúar fer fyrsta mótið í Suðurlandsdeild Eques fram í Rangárhöllinni á Hellu. Mótið hefst klukkan 18:30 en húsið opnar 17:30. Líkt og fram kom í viðtali hér á Eiðfaxa við Heklu Katharínu, formann stjórnar Suðurlandsdeildarinnar, að þá er fólk hvatt til þess að mæta í höllina og eiga skemmtilega kvöldstund. Fyrir þá sem ekki komast er mótið sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Aðalstyrktaraðili kvöldsins er Coca Cola og býður öllum frítt inn á keppnina.
Á þessu fyrsta keppniskvöldi er keppt í tveimur greinum annars vegar Parafimi og hins vegar Slaktaumatölti. Í þessar greinar senda liðin alls fjóra knapa til leiks, atvinnu- og áhugamaður mynda par sem keppa í parafiminni og sýna þar ýmsar listir. Í slaktaumatöltinu eru það svo einn atvinnumaður og einn áhugamaður sem keppa og er riðið til úrslita í hvorum flokki fyrir sig.
Á síðasta keppnistímabili voru það hjónin Ólafur Þórisson og Sarah Maadgaard Nielsen sem unnu parafimina, þau eru skráð til leiks í ár og ætla sér eflaust að endurtaka leikinn. Þá er þar einnig að finna parið sem náði þriðja sætinu í fyrra, Stellu Sólveigu Pálmarsdóttur og Aasu Ljungberg. Í þessari grein geta óvæntir hlutir alltaf gerst og mega pörin ekki við því að gera mikil mistök þannig að dýrmæt stig tapist. Með því að smella hér má kynna sér reglurnar í Parafimi nánar.
Þegar horft er til keppni í slaktaumatölti má búast við því að keppnin verði jöfn og spennandi. Í fyrra var það Ásmundur Ernir Snorrason sem stóð efstur atvinnumanna á Aðdáun frá Sólstað. Hann mætir nú á List frá Austurási. Þá má sjá á ráslitanum sterk pör líkt og Gústaf Ásgeir Hinriksson og Gými frá Skúfslæk sem hafa átt góðu gengi að fagna í slaktaumatölti. Þá er sigurvegarinn í Meistaradeild Líflands í slaktaumatölti, Jón Ársæll Bergmann, á meðal keppenda nú á hestinum Skjóna frá Skálakoti.
Í flokki áhugamanna í fyrra var það Soffía Sveinsdóttir sem efst stóð, hún er þó ekki á meðal knapa nú og því ljóst að nýr sigurvegari verður krýndur í þeim flokki. Hver það verður er erfitt að spá fyrir um. Aðeins eitt par sem var í úrslitum í fyrra er skráð til leiks en það eru þau Þórdís Sigurðardóttir og Gljái frá Austurkoti.
Ráslistar
| Suðurlandsdeild Eques í hestaíþróttum 2026 | ||||
| Parafimi | ||||
| Holl | At/Á | Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | At | Dagbjört Skúladóttir | Spyrnir frá Bárubæ | Kastalabrekka |
| 1 | Á | Anne Röser | Lokkadís frá Þóreyjarnúpi | Kastalabrekka |
| 2 | At | Hlynur Guðmundsson | Neisti frá Ytri-Skógum | Hestefli |
| 2 | Á | Snæbjörg Guðmundsdóttir | Dís frá Bjarnanesi | Hestefli |
| 3 | At | Sigríkur Jónsson | Hrefna frá Efri-Úlfsstöðum | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 3 | Á | Heiðdís Arna Ingvarsdóttir | Foringi frá Laxárholti 2 | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 4 | At | Stella Sólveig Pálmarsdóttir | Kúba frá Strandarhöfði | Vöðlar/Snilldarverk |
| 4 | Á | Aasa Elisabeth Emelie Ljungberg | Fengsæll frá Jórvík | Vöðlar/Snilldarverk |
| 5 | At | Ásdís Brynja Jónsdóttir | Rós frá Fákshólum | Wicked viking |
| 5 | Á | Jónas Már Hreggviðsson | Kolbeinn frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 6 | At | Lea Schell | Korkur frá Hárlaugsstöðum 2 | Krappi |
| 6 | Á | Sara Pesenacker | Kjarval frá Skíðbakka III | Krappi |
| 7 | At | Hekla Katharína Kristinsdóttir | Rökkvi frá Heysholti | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 7 | Á | Arney Ólöf Arnardóttir | Safír frá Árbæjarhjáleigu II | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 8 | At | Hekla Rán Hannesdóttir | Tindur frá Árdal | Bakkakot |
| 8 | Á | Hinrik Ragnar Helgason | Freyr frá Bakkakoti | Bakkakot |
| 9 | At | Þorgils Kári Sigurðsson | Nasi frá Syðra-Velli | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 9 | Á | Emma Goltz | Elrir frá Grundarfirði | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 10 | At | Selina Bauer | Fía frá Strandarhöfði | Húsasmiðjan |
| 10 | Á | Lilja Hrund Pálsdóttir | Reykur frá Prestsbakka | Húsasmiðjan |
| 11 | At | Ólafur Þórisson | Sólbirta frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| 11 | Á | Sarah Maagaard Nielsen | Djörfung frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| Slaktaumatölt | ||||
| Holl | At/Á | Knapi | Hestur | Lið |
| 1 | Á | Þórdís Sigurðardóttir | Gljái frá Austurkoti | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 1 | Á | Rúnar Freyr Rúnarsson | Styrkur frá Stokkhólma | Bakkakot |
| 2 | At | Halldór Snær Stefánsson | Tign frá Norður-Nýjabæ | Kastalabrekka |
| 2 | At | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | Hjaltalín frá Sumarliðabæ 2 | Hestefli |
| 3 | Á | Elísabet Gísladóttir | Víkingur frá Hrafnsholti | Wicked viking |
| 3 | Á | Hannes Brynjar Sigurgeirson | Sigurpáll frá Varmalandi | Vöðlar/Snilldarverk |
| 4 | At | Katrín Sigurðardóttir | Bára frá Hrauni | Miðkot/Skeiðvellir |
| 4 | At | Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir | Penni frá Eskiholti II | Húsasmiðjan |
| 5 | Á | Kristinn Karl Garðarsson | Veigar frá Grafarkoti | Krappi |
| 5 | Á | Svana Hlín Eiríksdóttir | Hagalín frá Efri-Rauðalæk | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
| 6 | At | Alma Gulla Matthíasdóttir | Ágúst frá Hrauni | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 6 | At | Malin Marianne Andersson | Tangó frá Skriðu | Wicked viking |
| 7 | Á | Malou Sika Jester Bertelsen | Kakali frá Glæsibæ | Kastalabrekka |
| 7 | Á | Arndís Ólafsdóttir | Sigur frá Sunnuhvoli | Húsasmiðjan |
| 8 | At | Eygló Arna Guðnadóttir | Sóli frá Þúfu í Landeyjum | Raflagnaþjónusta Selfoss |
| 8 | At | Ásmundur Ernir Snorrason | List frá Austurási | Vöðlar/Snilldarverk |
| 9 | Á | Theodóra Jóna Guðnadóttir | Óskadís frá Miðkoti | Miðkot/Skeiðvellir |
| 9 | Á | Þorbjörn Hreinn Matthíasson | Máni frá Syðra-Velli | Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás |
| 10 | At | Sigurður Sigurðarson | Tromma frá Kjarnholtum I | Krappi |
| 10 | At | Jón Ársæll Bergmann | Skjóni frá Skálakoti | Bakkakot |
| 11 | Á | Hulda Jónsdóttir | Grátur frá Hraunbæ | Hestefli |
| 12 | At | Gústaf Ásgeir Hinriksson | Gýmir frá Skúfslæk | Árbakki/Árbæjarhjáleiga |
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum