Ræktunardagur Eiðfaxa- Atlas frá Hjallanesi og Vörður frá Vindási

  • 29. október 2020
  • Sjónvarp

Ræktunardagur Eiðfaxa var haldinn hátíðlegur í frábæru veðri laugardaginn 9.maí í Víðidalnum í Reykjavík. Þetta var fyrsti opni viðburðurinn sem haldinn var að fyrstu bylgju Covid-19 lokinni en þó í fullri sátt við sóttvarnaryfirvöld.

Margir frábærir hesta komu fram þennan dag jafnt sem einstaklingar, afkvæmahestar eða sem fulltrúar sinna ræktunarbúa. Á næstu vikum munum við deila hér á vefsíðu Eiðfaxa þeim atriðum sem komu fram þennan skemmtilega dag.

Atriðið sem við sjáum núna eru þeir Vörður frá Vindási, sem Þórarinn Ragnarsson situr og Atlas frá Hjallanesi sem Teitur Árnason sýnir.

 

Fleiri myndbönd frá Ræktunardegi Eiðfaxa

 

Ræktunardagur Eiðfaxa- Albræðurnir Jökull og Rökkvi

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar