Rangárþing eystra leitar eftir eiganda óskila hross

Inná vefsíðu Rangárþings eystra er leitað eftir eiganda óskila hross sem var fangað í Austur-Landeyjum í síðustu viku.
„Óskila hross, 3ja vetra graðhestur, bleikálóttur með stjörnu, var handsamað í Austur Landeyjum í síðustu viku, sjá mynd hér að ofan. Hrossið er ekki örmerkt,“ segir í tilkynningunni.
„Ef enginn eigandi finnst verður hrossið selt á uppboði með vísan til 4. mgr. 59. gr. laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl.“
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Rangárþings eystra, sími: 488 4200 og á netfanginu hvolsvollur@hvolsvollur.is