Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar

  • 20. janúar 2026
  • Fréttir

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum unnu fjórganginn í Meistaradeildinni í fyrra Mynd: Carolin Giese

Það stefnir í hörkukeppni í fjórgangi Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum.

Keppni hefst á fimmtudaginn kl. 19:00 í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli en einnig verður sýnt frá keppninni í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Ráslisti kvöldsins er ekki af verri endanum. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir á Flóvent frá Breiðstöðum, mætir. Jakob Svavar Sigurðsson mætir á Skarpi frá Kýrholti en þeir unnu fjórganginn árið þar áður. Stjörnupar síðasta ár, Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði eru skráð til leiks svo það verður gæðingabragur á HorseDay höllinni á fimmtudaginn.

Húsið opnar kl. 17:00 en frítt er í höllina í boði Toyota Selfossi. Líkt og fyrri ár er hægt að panta borð fyrirfram og fá frátekin sæti í höllinni.

Hér fyrir neðan er ráslistinn fyrir fjórganginn
Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Lið
1 Arnhildur Helgadóttir Fákur frá Kaldbak Vákur frá Vatnsenda Elding frá Kaldbak Hjarðartún
2 Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Sökkull frá Dalbæ Nótt frá Kálfsstöðum Hrímnir / Hest.is
3 Benjamín Sandur Ingólfsson Áki frá Hurðarbaki Spuni frá Vesturkoti Papey frá Dalsmynni Ib bílar
4 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi Draupnir frá Stuðlum Ólga frá Steinnesi Top Reiter / Sumarliðabær
5 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum Sökkull frá Dalbæ Dóttla frá Hólum Ganghestar / Margrétarhof
6 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal Bátur frá Brúnum Sýning frá Litla-Dal Hestvit / Árbakki
7 Jakob Svavar Sigurðsson Skarpur frá Kýrholti Skýr frá Skálakoti Skrugga frá Kýrholti Hjarðartún
8 Védís Huld Sigurðardóttir Kulur frá Hafsteinsstöðum Dofri frá Sauðárkróki Fjöður frá Hafsteinsstöðum Ganghestar / Margrétarhof
9 Bergur Jónsson Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum Lord frá Vatnsleysu Álfadís frá Selfossi Ib bílar
10 Glódís Rún Sigurðardóttir Logi frá Staðartungu Eldur frá Bjarghúsum Skuggsjá frá Staðartungu Hestvit / Árbakki
11 Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Loki frá Selfossi Gola frá Þjórsárbakka Uppboðssæti
12 Árni Björn Pálsson Orka frá Hvolsvelli Skýr frá Skálakoti Vordís frá Hvolsvelli Top Reiter / Sumarliðabær
13 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Loki frá Selfossi Sunna frá Sumarliðabæ 2 Hrímnir / Hest.is
14 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum Hreyfill frá Vorsabæ II Flauta frá Hala Top Reiter / Sumarliðabær
15 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti Frami frá Ketilsstöðum Brynja frá Bakkakoti Ib bílar
16 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku Kveikur frá Stangarlæk 1 Birta frá Lambanes-Reykjum Hjarðartún
17 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Pan frá Breiðstöðum Dúkka frá Úlfsstöðum Ganghestar / Margrétarhof
18 Flosi Ólafsson Suðri frá Varmalandi Grunur frá Oddhóli Gjálp frá Miðsitju Hrímnir / Hest.is
19 Pierre Sandsten Hoyos Kinnungur frá Torfunesi Korgur frá Ingólfshvoli Stefna frá Torfunesi Hestvit / Árbakki

 

Tryggðu þér ársáskrift að EiðfaxaTV strax í dag og vertu með frá upphafi keppnistímabilsins, því nóg er framundan!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar