Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Samskipadeildin í kvöld

  • 20. febrúar 2025
  • Fréttir
Fyrsta mótið í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts, er á morgun.

Keppt verður í fjórgangi V2 í Samskipahöllinni í Spretti og byrjar veislan stundvíslega kl 19:00. Veitingasalan verður á sínum stað og kjörið tækifæri til að mæta snemma og njóta góðra veitinga fyrir keppnina en húsið opnar kl 17:30.

Flóra veisluþjónusta sér um veitingarnar en boðið er upp á:

  • Sveppasúpu og brauð
  • Kimchi marineruð kjúklingalæri
  • Ofnbakaðar sætar kartölfur
  • Kjúklingasoðsósa
  • Blandað salat með dukkah
  • Blómkál með sítrónusósu og granateplum
  • Brokkolí með sólblómafræjum og kryddjurtamajó
  • Gular baunir
  • Hrásalat
  • Kaka með kaffinu

Verkfæralagerinn er aðalstyrktaraðili kvöldsins en frítt er inn á öll kvöld Samskipadeildarinnar.

„Við hvetjum öll til að mæta og hvetja keppendur áfram. Mikil og skemmtileg stemming hefur myndast á keppniskvöldum Samskipadeildarinnar,“ segir stjórn deildarinnar.

Í fyrra voru það þeir Hannes Sigurjónsson og Grímur frá Skógarási sem unnu fjórganginn en ráslistinn er klár fyrir morgun daginn og spennandi að sjá hver stendur uppi sem sigurvegari.

Þau sem komast ekki á staðinn geta horft á beina útsendingu á www.eidfaxitv.is.

Ráslisti fyrir fjórgang V2 í samskipadeildinni

Holl Knapi Lið Hestur
1 Þórdís Sigurðardóttir Pula-Votamýri-Hofsstaðir Árvakur frá Minni-Borg
1 Eiríkur Þ. Davíðsson Stólpi Gámar Eldvör frá Kanastöðum
1 Valdimar Ómarsson Tommy Hilfiger Sólarorka frá Álfhólum
2 Inga Dröfn Sváfnisdóttir Hrossaræktin Strönd II Von frá Kirkjuferjuhjáleigu
2 Rúnar Freyr Rúnarsson Réttverk Kári frá Björgum
2 Aníta Rós Róbertsdóttir Trausti Moli frá Miðhúsum
3 Jóhann Tómas Egilsson Sveitin Salvör frá Efri-Hömrum
3 Eyrún Jónasdóttir Hótel Rangá Baldur frá Kálfholti
3 Kolbrún Kristín Birgisdóttir Vörðufell Stirnir frá Blesastöðum 2A
4 Orri Arnarson Lið Spesíunnar Tign frá Leirubakka
4 Sigurbjörn Viktorsson Nýsmíði Seifur frá Brekkubæ
4 Brynja Viðarsdóttir Tommy Hilfiger Gáta frá Bjarkarey
5 Pálmi Geir Ríkharðsson Sindrastaðir Hvatning frá Syðri-Völlum
5 Harpa Kristjánsdóttir Vörðufell Sóley frá Heiði
5 Bjarni Sigurðsson Trausti Karlsefni frá Hvoli
6 Arnhildur Halldórsdóttir Réttverk Heiðrós frá Tvennu
6 Árni Geir Norðdahl Eyþórsson Sveitin Logi frá Lundum II
6 Þórunn Kristjánsdóttir Pula-Votamýri-Hofsstaðir Askur frá Eystri-Hól
7 Sigurlín F Arnarsdóttir Hótel Rangá Jóra frá Herríðarhóli
7 Elísabet Gísladóttir Hrafnsholt Víkingur frá Hrafnsholti
7 Hrönn Ásmundsdóttir Stafholthestar Rafn frá Melabergi
8 Erla Katrín Jónsdóttir Sveitin Harpa frá Horni
8 Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir Hrossaræktin Strönd II Glæðir frá Langholti
8 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Trausti Hnokki frá Áslandi
9 Renate Hannemann Hótel Rangá Kjarni frá Herríðarhóli
9 Kolbrún Grétarsdóttir Sindrastaðir Jaðrakan frá Hellnafelli
10 Guðmundur Ásgeir Björnsson Sveitin Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2
10 Stefán Bjartur Stefánsson Hrafnsholt Sæluvíma frá Sauðanesi
10 Rósa Valdimarsdóttir Réttverk Hrafnadís frá Álfhólum
11 Kristín Ingólfsdóttir Nýsmíði Ásvar frá Hamrahóli
11 Ólöf Guðmundsdóttir Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk Aldar frá Hestasýn
11 Ragnar Stefánsson Trausti Oddur frá Hárlaugsstöðum 2
12 Elín Íris Jónasdóttir Lið Spesíunnar Rökkvi frá Lækjardal
12 Júlía Guðbjörg Gunnarsdóttir Stólpi Gámar Vörður frá Eskiholti II
12 Bryndís Guðmundsdóttir Hrafnsholt Framför frá Ketilsstöðum
13 Kjartan Ólafsson Nýsmíði Gullprjónn frá Gunnarsstöðum
13 Ámundi Sigurðsson Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk Embla frá Miklagarði
13 Herdís Einarsdóttir Sindrastaðir Griffla frá Grafarkoti
14 Sólveig Þórarinsdóttir Sveitin Hvinur frá Varmalandi
14 Sarah Maagaard Nielsen Hótel Rangá Djörfung frá Miðkoti
15 Gunnar Már Þórðarson Pula-Votamýri-Hofsstaðir Júpíter frá Votumýri 2
15 Sveinbjörn Bragason Stafholthestar Gæfa frá Flagbjarnarholti
15 Erla Magnúsdóttir Hrossaræktin Strönd II Blakkur frá Árbæjarhjáleigu II
16 Erna Jökulsdóttir Stólpi Gámar Kveikur frá Melkoti
16 Inga Kristín Sigurgeirsdóttir Hrafnsholt Kví frá Víðivöllum fremri
16 Ragnheiður Jónsdóttir Lið Spesíunnar Skeleggur frá Ósabakka 2
17 Hrafnhildur B. Arngrímsdó Tommy Hilfiger Loki frá Syðra-Velli
17 Þórunn Hannesdóttir Stafholthestar Skál frá Skör
17 Kristinn Karl Garðarsson Nýsmíði Veigar frá Grafarkoti
18 Sigurður Jóhann Tyrfingsson Stólpi Gámar Sól frá Kirkjubæ
18 Gunnar Tryggvason Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk Katla frá Brimilsvöllum
18 Jónas Már Hreggviðsson Hrafnsholt Elding frá Hrafnsholti
19 Theódóra Þorvaldsdóttir Pula-Votamýri-Hofsstaðir Snillingur frá Sólheimum
19 Patricia Ladina Hobi Stafholthestar Siggi Sæm frá Þingholti
19 Ásta Snorradóttir Hrossaræktin Strönd II Jörfi frá Hemlu II
20 Sigurbjörn Eiríksson Tommy Hilfiger Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ
20 Arna Hrönn Ámundadóttir Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk Aspar frá Miklagarði
20 Óskar Pétursson Réttverk Bjartur frá Finnastöðum
21 Sverrir Sigurðsson Lið Spesíunnar Brá frá Vesturási
21 Anna Vilbergsdóttir Vörðufell Tími frá Hofi á Höfðaströnd
21 Svanbjörg  Vilbergsdóttir Hrossaræktin Strönd II Gjöf frá Brenniborg
22 Sverrir Einarsson Réttverk Lukka frá Votmúla 2
22 Erla Guðný Gylfadóttir Pula-Votamýri-Hofsstaðir Fluga frá Garðabæ
22 Brynja Pála Bjarnadóttir Stólpi Gámar Skriða frá Litla-Dunhaga II
23 Esther Ósk Ármannsdóttir Vörðufell Selja frá Litla-Dal
23 Darri Gunnarsson Trausti Draumur frá Breiðstöðum
23 Elías Árnason Lið Spesíunnar Blíða frá Árbæ
24 Gunnar Eyjólfsson Stafholthestar Kjarkur frá Litlalandi Ásahreppi
24 Guðlaug Jóna Matthíasdóttir Tommy Hilfiger Kara frá Korpu
24 Eyþór Jón Gíslason Bifreiðaverkstæði Böðvars og Borgarverk Spurning frá Spágilsstöðum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar