Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Ríkharður tók fimmganginn

  • 17. febrúar 2022
  • Fréttir
Niðurstöður úr fimmgangnum í Equsana deildinni

Fimmgangskeppni Equsana deildarinnar fór fram í kvöld í Samskipahöllinni í Spretti. Eftir forkeppni var Ríkharður Flemming Jensen efstur á Myrka frá Traðarlandi með 6,53 í einkunn og jöfn í öðru til þriðja sæti voru þau Sanne Van Hezel á Völundi frá Skálakoti og Sigurður Halldórsson á Gusti frá Efri-Þverá með 6,40 í einkunn. Þeir Sigurður og Gustur sigruðu þessa grein í fyrra og voru mættir aftur til að verja titil sinn þrátt fyrir handleggsbrot.

Úrslitin voru hörkuspennandi og var mikið um sviptingar. Eftir töltið stóðu þeir jafnir efstir Hermann Arason á Verði frá Vindási, Halldór Sigurkarlsson á Nökkva frá Hrísakoti og Ríkharður á Myrkva. Eftir brokk leiddu Halldór og Nökkvi en eftir fetið tóku þeir Hermann og Vörður aftur forustu. Eftir stökkið stóðu þau jöfn efst Hermann á Verði og Katrín Sigurðardóttir á Hauki frá Skeiðvöllum. Jafnt var þó á munum og nokkuð víst að ekkert mætti klikka á skeiðinu. Úrslitin fóru svo að Ríkharður tryggði sér sigurinn með frábærum skeiðsýningum og enduðu þeir Myrki með 6,64 í einkunn. Sigurður og Gustur fóru mikinn á skeiðinu og nældu sér í annað sætið með 6,52 í einkunn og í því þriðja urðu þau Katrín og Haukur með 6,38 í einkunn. Niðurstöður kvöldsins er hægt að sjá hér fyrir neðan.

Liðakeppnin fór þannig að lið Stjörnublikk var stigahæst fyrir kvöldið með 121 stig, lið Vagna og þjónustu önnur með 113 stig og þriðja var lið Heimahaga með 110 stig.

A úrslit – Fimmgangur – Equsana deildin

1 Ríkharður Flemming Jensen Myrkvi frá Traðarlandi 6,64
2 Sigurður Halldórsson Gustur frá EfriÞverá 6,52
3 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum 6,38
4 Hermann Arason Vörður frá Vindási 6,33
5 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 5,98
6 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri Þverá 5,64
7 Halldór Sigurkarlsson Nökkvi frá Hrísakoti 5,17

Forkeppni – Fimmgangur – Equsana deildin

1 Ríkharður Flemming Jensen Myrkvi frá Traðarlandi Brúnn/milli-einlitt Sprettur 6,53
2-3 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá Jarpur/dökk-einlitt Sprettur 6,40
2-3 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti Rauður/milli-einlitt Sindri 6,40
4 Halldór Sigurkarlsson Nökkvi frá Hrísakoti Brúnn/milli-einlitt Borgfirðingur 6,27
5 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri-Þverá Rauður/milli-blesa auk leista eða sokkaglófext Sindri 6,23
6 Hermann Arason Vörður frá Vindási Jarpur/dökk-einlitt Sprettur 6,20
7 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum Bleikur/álóttureinlitt Geysir 6,17
8 Anna Kristín Kristinsdóttir Frægð frá Strandarhöfði Grár/rauðureinlitt Sprettur 6,13
9 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum Rauður/milli-einlitt Geysir 6,07
10 Sigurbjörn Viktorsson Sókron frá Hafnarfirði Rauður/milli-nösótt Fákur 6,03
11 Petra Björk Mogensen Björk frá Barkarstöðum Brúnn/milli-stjörnótt Sprettur 5,97
12 Sigurður Grétar Halldórsson Ás frá Eystri-Hól Brúnn/milli-einlitt Sprettur 5,73
13 Guðmundur Jónsson Ýr frá Reykjum Grár/brúnneinlitt Fákur 5,70
14 Jóna Margrét Ragnarsdóttir Frami frá Efri-Þverá Brúnn/milli-stjörnótt Fákur 5,63
15 Kristín Ingólfsdóttir Tónn frá Breiðholti í Flóa Brúnn/milli-einlitt Sörli 5,60
16 Hrafnhildur Guðmundsdóttir Vífill frá Sturlureykjum 2 Rauður/milli-blesótt Borgfirðingur 5,57
17 Jóhann Ólafsson Ísafold frá Velli II Grár/brúnntvístjörnótt Fákur 5,43
18 Sigurbjörn J Þórmundsson Freyr frá Hraunbæ Grár/brúnneinlitt Fákur 5,17
19 Pálmi Geir Ríkharðsson Káinn frá Syðri-Völlum Rauður/milli-stjörnótt Þytur 5,13
20-21 Jóhann Albertsson Sinfónía frá Gauksmýri Bleikur/álóttureinlitt Þytur 5,07
20-21 Patricia Ladina Hobi Jökull frá Hofsstöðum Rauður/milli-stjörnótt Brimfaxi 5,07
22 Sævar Örn Sigurvinsson Sævar frá Arabæ Brúnn/mó-einlitt Sleipnir 5,03
23 Kristinn Már Sveinsson Silfurperla frá Lækjarbakka Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Hörður 5,00
24 Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir Nótt frá Kommu Brúnn/milli-einlitt Sörli 4,97
25 Darri Gunnarsson Ísing frá Harðbakka Grár/rauðurblesótt Sörli 4,90
26-28 Björg María Þórsdóttir Bersir frá Hægindi Jarpur/rauð-einlitt Borgfirðingur 4,87
26-28 Eyrún Jónasdóttir Mist frá Einhamri 2 Brúnn/dökk/sv.einlitt Geysir 4,87
26-28 Bryndís Arnarsdóttir Teitur frá Efri-Þverá Brúnn/milli-einlitt Sörli 4,87
29-30 Jón Ó Guðmundsson Glymur frá Hofsstöðum, Garðabæ Rauður/milli-blesótt Sprettur 4,77
29-30 Arnhildur Halldórsdóttir Hvellur frá Ásmundarstöðum 3 Rauður/dökk/dr.stjörnótt Sprettur 4,77
31 Viggó Sigurðsson Faxi frá Hlemmiskeiði 2 Jarpur/milli-einlitt Fákur 4,73
32 Sævar Örn Eggertsson Hrafnveig frá Álfhólum Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Borgfirðingur 4,43
33 Halldór P. Sigurðsson Muninn frá Hvammstanga Brúnn/milli-einlitt Þytur 4,33
34 Gunnar Sturluson Lyfting frá Kvistum Bleikur/fífil-blesótt Snæfellingur 4,23
35 Sylvía Sól Magnúsdóttir Siggi Sæm frá Þingholti Jarpur/milli-einlitt Brimfaxi 4,20
36 Gunnar Már Þórðarson Þengill frá Votumýri 2 Moldóttur/gul-/m-einlitt Sprettur 4,17
37 Þórdís Sigurðardóttir Hlíf frá Strandarhjáleigu Rauður/milli-stjörnótt Sleipnir 4,07
38 Magnús Ingi Másson Farsæll frá Litla-Garði Rauður/milli-skjótt Hörður 3,87
39 Sandra Steinþórsdóttir Nn frá Selfossi Brúnn/gló-einlitt Sleipnir 3,77
40 Gunnar Eyjólfsson Hljómur frá Litlalandi Ásahreppi Rauður/ljós-stjörnótt Máni 3,73
41 Bergdís Finnbogadóttir Blær frá Einhamri 2 Móálóttur,mósóttur/milli-stjörnótt Fákur 3,63
42 Bragi Birgisson Kolgrímur frá EfriGegnishólum Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 3,30
43 Jónas Már Hreggviðsson Kolbeinn frá Hrafnsholti Brúnn/dökk/sv.stjörnótt Sleipnir 3,13
44 Elísabet Gísladóttir Kolbrá frá Hrafnsholti Brúnn/milli-einlitt Sleipnir 2,53
45 Svandís Beta Kjartansdóttir Flinkur frá Svarfhóli Jarpur/milli-skjótt Fákur 2,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar