RML auglýsir eftir ráðunaut á hrossaræktarsviði
Á heimasíðu RML má nú finna auglýsingu um starf ráðunautar í hrossarækt.
Starfs- og ábyrgðarsvið
- Fræðsla og miðlun þekkingar tengd hrossarækt
- Ráðgjöf, nýsköpun og þjónusta tengd hrossarækt
- Vinna í teymi hrossaræktar og með öðrum ráðgjöfum RML
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á sviði búvisinda, raungreina, eða náttúruvísinda æskileg.
- Góð þekking á hrossarækt og reynsla af faglegu starfi æskilegt
- Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti
- Góð íslensku og ensku kunnátta
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð í teymisvinnu og góðir samskiptahæfileikar
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á landbúnaði í sínum víðasta skilningi og hefur metnað og frumkvæði til að vinna að ráðgjafarstarfsemi RML.
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins er ráðgjafarfyrirtæki í eigu bænda og sinnir landbúnaðarráðgjöf um allt land. Starfsemin er dreifð um landið á 12 starfsstöðvum. Við bendum áhugasömum á að hægt er að kynna sér starfsemina enn frekar hér í gegnum heimasíðuna.
Umsóknarfrestur er til og með 5. mars. Nánari upplýsingar veita Karvel L. Karvelsson (klk@rml.is) og Friðrik Már Sigurðsson (fridrik@rml.is).