Sæðingastöðvar fyrir hross eru leyfisskyldar

  • 23. júní 2023
  • Tilkynning
Frestur til að senda inn umsókn um rekstrarleyfi er til 01.07.2023

Matvælastofnun vekur athygli á að rekstur sæðingastöðva og fósturvísastöðva fyrir hross er leyfisskyld starfsemi samkvæmt 3. gr. reglugerðar um búfjársæðingar og flutning fósturvísa nr. 540/2016.

Rekstraraðilum slíkra stöðva, sem ekki hafa þegar leyfi á grundvelli reglugerðarinnar, er hér með veittur frestur til 01.07.2023 til að senda umsókn um rekstrarleyfi í gegnum þjónustugátt stofnunarinnar á www.mast.is

Um er að ræða eftirlitsskylda starfsemi.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar