Hestamannafélagið Fákur Safír og Álfamær unnu B og A flokkinn

  • 26. maí 2024
  • Fréttir
Niðurstöður frá gæðingamóti Fáks og landsmótsúrtöku félagsins

Gæðingamót Fáks og landsmótsúrtaka fyrir félagið kláraðist nú um helgina. Boðið var upp á tvær umferðir og var seinni umferð riðin í dag á undan úrslitum mótsins. Einkunnir úr fyrri umferð giltu inn í úrslit gæðingamótsins.

Gæðingakeppnin var mjög sterk og spennandi í Fáki. Álfamær frá Prestsbæ og Árni Björn Pálsson unnu A flokkinn með 9,01 í einkunn. Í örðu sæti varð Atlas frá Hjallanesi og Teitur Árnason með 8,88 í einkunn og í því þriðja Seðill frá Árbæ og Sigurður Vignir Matthíasson með 8,85 í einkunn.

B flokkinn vann Safír frá Mosfellsbæ og Sigurður V. Matthíasson með 8,89 í einkunn. Með sömu einkunn en örlítið lægri að aukastöfum voru þeir Hylur frá Flagbjarnarholti og Teitur Árnason og í þriðja sæti varð Gullhamar og Hinrik Bragason með 8,80 í einkunn.

Barnaflokkinn vann Sigurður Ingvarsson á Ísak frá Laugamýri með 8,68, unglingaflokkinn vann Sigurbjörg Helgadóttir á Elvu frá Auðsholtshjáleigu með 8,73 í einkunn og ungmennaflokkinn vann Matthías Sigurðsson á Tuma frá Jarðbrú. Matthías hlaut einnig Gregersen styttuna sem er veitt þeim Fákskeppanda sem sýnir prúðmennsku og snyrtimennsku í hvítvetna og er ávallt klæddur Fáksbúningi í allri keppni á meðan á mótinu stendur.

Keppt var einnig í tölt T1 og skeiðkappreiðar á mótinu. Í tölti T1 var það Benjamín Sandur Ingólfsson á Eldingu frá Hrímnisholti sem bar sigur úr býtum með 7,89 í einkunn. Árni Björn Pálsson vann 250 m. skeiðið á Ögra frá Horni með tímann 21,99 og 150 m. skeiðið á Þokka frá Varmalandi með tímann 14,13 sek. Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu unnu 100 m. skeiðið með tímann 7,60 sek.

Hestamannafélagið Fákur hefur heimild til að senda 15 efstu þátttakendurna í gæðingaflokkum á Landsmót en félagið er það stærsta á landinu og hefur því mesta fjölda fulltrúa á mótinu. Hér fyrir neðan eru samansettar niðurstöður úr fyrri og seinni umferð í öllum flokkum.

Niðurstöður úr A úrslitum gæðingamót Fáks.

A úrslit – A flokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Álfamær frá Prestsbæ Árni Björn Pálsson 9,01
2 Atlas frá Hjallanesi 1 Teitur Árnason 8,88
3 Seðill frá Árbæ Sigurður Vignir Matthíasson * 8,85
4 Villingur frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,74
5 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,73
6 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,61
7 Vakar frá Auðsholtshjáleigu Matthías Leó Matthíasson 8,58
8 Nóta frá Flugumýri II Eyrún Ýr Pálsdóttir 7,79

A úrslit – B flokkur
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Safír frá Mosfellsbæ Sigurður Vignir Matthíasson 8,89
2 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,89
3 Gullhamar frá Dallandi Hinrik Bragason 8,80
4 Gná frá Skipaskaga Árni Björn Pálsson 8,75
5 Stimpill frá Strandarhöfði Stella Sólveig Pálmarsdóttir 8,67
6 Þormar frá Neðri-Hrepp Viðar Ingólfsson 8,66
7 Óríon frá Strandarhöfði Ásmundur Ernir Snorrason 8,61
8 Björk frá Vestra-Fíflholti Kári Steinsson 0,00

A úrslit – Barnaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sigurður Ingvarsson Ísak frá Laugamýri 8,68
2 Alexander Þór Hjaltason Salka frá Mörk 8,51
3 Viktor Leifsson Glaður frá Mykjunesi 2 8,46
4 Elísabet Emma Björnsdóttir Moli frá Mið-Fossum 8,46
5 Helga Rún Sigurðardóttir Steinn frá Runnum 8,39
6 Hrafnar Freyr Leósson Heiðar frá Álfhólum 8,37
7 Oliver Sirén Matthíasson Glæsir frá Traðarholti 8,29
8 Emilía Íris Ívarsd. Sampsted Erró frá Höfðaborg 8,19

A úrslit – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Sigurbjörg Helgadóttir Elva frá Auðsholtshjáleigu 8,73
2 Ragnar Snær Viðarsson Saga frá Kambi 8,67
3 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Sigð frá Syðri-Gegnishólum 8,60
4 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Háfleygur frá Álfhólum 8,59
5 Þórhildur Helgadóttir Kóngur frá Korpu 8,48
6 Bertha Liv Bergstað Segull frá Akureyri 8,47
7-8 Andrea Óskarsdóttir Orkubolti frá Laufhóli 8,28
7-8 Katrín Dóra Ívarsdóttir Óðinn frá Hólum 8,28

A úrslit – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 8,81
2 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 8,55
3 Anna Sager Sesar frá Rauðalæk 8,52
4 Hanna Regína Einarsdóttir Míka frá Langabarði 8,47
5 Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Lífeyrissjóður frá Miklabæ 8,44
6 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 8,38
7 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 8,34
8 Aníta Rós Kristjánsdóttir Samba frá Reykjavík 8,19

A úrslit – Tölt T1
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Benjamín Sandur Ingólfsson Elding frá Hrímnisholti 7,89
2 Hulda Gústafsdóttir Flauta frá Árbakka 7,44
3 Arnar Máni Sigurjónsson Stormur frá Kambi 6,94

Skeið 250m P1
Sæti Knapi Hross Tími
1 Árni Björn Pálsson Ögri frá Horni I 21,99
2 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 22,14
3 Sigursteinn Sumarliðason Krókus frá Dalbæ 22,34
4 Matthías Sigurðsson Magnea frá Staðartungu 22,80
5 Helgi Gíslason Hörpurós frá Helgatúni 23,31
6 Hanne Oustad Smidesang Vinátta frá Árgerði 23,34
7 Sara Sigurbjörnsdóttir Dimma frá Skíðbakka I 26,42
8 Ævar Örn Guðjónsson Vigdís frá Eystri-Hól 0,00

Skeið 150m P3
Sæti Knapi Hross Tími
1 Árni Björn Pálsson Þokki frá Varmalandi 14,13
2 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 14,26
3 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Óskastjarna frá Fitjum 15,12
4 Þráinn Ragnarsson Blundur frá Skrúð 15,39
5 Kjartan Ólafsson Hilmar frá Flekkudal 15,45
6 Erlendur Ari Óskarsson Hrafnkatla frá Ólafsbergi 15,53
7 Larissa Silja Werner Hylur frá Kjarri 15,62
8 Ævar Örn Guðjónsson Draumur frá Borgarhóli 16,31
9 Guðmundur Ásgeir Björnsson Gnýr frá Gunnarsholti 18,26
10-14 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II 0,00
10-14 Matthías Sigurðsson Gjöf frá Ármóti 0,00
10-14 Benjamín Sandur Ingólfsson Grunur frá Lækjarbrekku 2 0,00
10-14 Birta Ingadóttir Dreki frá Meðalfelli 0,00
10-14 Ævar Örn Guðjónsson Viðja frá Efri-Brú 0,00

Flugskeið 100m P2
Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 7,60
2 Sveinn Ragnarsson Kvistur frá Kommu 7,71
3 Viðar Ingólfsson Ópall frá Miðási 7,75
4 Jón Ársæll Bergmann Rikki frá Stóru-Gröf ytri 7,95
5 Hinrik Bragason Trú frá Árbakka 7,98
6 Benjamín Sandur Ingólfsson Ljósvíkingur frá Steinnesi 8,01
7 Birta Ingadóttir Dreki frá Meðalfelli 8,41
8 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Frekja frá Dýrfinnustöðum 8,46
9 Hrefna María Ómarsdóttir Alda frá Borgarnesi 8,81
10 Sigurbjörg Helgadóttir Atlas frá Svörtuloftum II 8,82
11 Guðrún Margrét Valsteinsdóttir Glæða frá Akureyri 9,99
12-15 Erlendur Ari Óskarsson Örk frá Fornusöndum 0,00
12-15 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bríet frá Austurkoti 0,00
12-15 Hrund Ásbjörnsdóttir Heiða frá Austurkoti 0,00
12-15 Bertha Liv Bergstað Auðna frá Hlíðarfæti 0,00

Samansettar niðurstöður úr fyrri og seinni umferð úrtöku Fáks

A flokkur
Hross Knapi Einkunn
Álfamær frá Prestsbæ Árni Björn Pálsson 8,88
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,79
Seðill frá Árbæ Árni Björn Pálsson 8,74
Atlas frá Hjallanesi 1 Teitur Árnason 8,74
Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,65
Nóta frá Flugumýri II Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,63
Villingur frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,62
Vigri frá Bæ Viðar Ingólfsson 8,62
Vísir frá Ytra-Hóli Hinrik Bragason 8,61
Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,57
Jökull frá Breiðholti í Flóa Sylvía Sigurbjörnsdóttir 8,57
Vakar frá Auðsholtshjáleigu Matthías Leó Matthíasson 8,57
Vigur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,54
Stilla frá Ytra-Hóli Þorvaldur Árni Þorvaldsson 8,49
Seiður frá Hólum Konráð Valur Sveinsson 8,49
Ketill frá Hvolsvelli Ásmundur Ernir Snorrason 8,49
Luther frá Vatnsleysu Jón Herkovic 8,47
Fákur frá Oddhóli Sara Sigurbjörnsdóttir 8,43
Bláfeldur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,40
Gná frá Klömbrum Sigurður Vignir Matthíasson 8,33
Organisti frá Vakurstöðum Teitur Árnason 8,28
Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,27
Frami frá Efri-Þverá Barla Catrina Isenbuegel 7,97
Mói frá Árbæjarhjáleigu II Ragnar Snær Viðarsson 7,89
Abel frá Hjallanesi 1 Guðjón G Gíslason 7,45
Persía frá Velli II Jón Herkovic 7,41

B flokkur 
Áki frá Hurðarbaki Benjamín Sandur Ingólfsson 8,70
Safír frá Mosfellsbæ Sigurður Vignir Matthíasson 8,69
Gullhamar frá Dallandi Hinrik Bragason 8,61
Óríon frá Strandarhöfði Ásmundur Ernir Snorrason 8,58
Stimpill frá Strandarhöfði Stella Sólveig Pálmarsdóttir 8,58
Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,58
Þormar frá Neðri-Hrepp Viðar Ingólfsson 8,58
Gná frá Skipaskaga Árni Björn Pálsson 8,53
Dússý frá Vakurstöðum Teitur Árnason 8,53
Hamar frá Varmá Gústaf Ásgeir Hinriksson 8,52
Stormfaxi frá Álfhólum Þorvaldur Árni Þorvaldsson 8,51
Sólfaxi frá Reykjavík Hákon Dan Ólafsson 8,50
Hrönn frá Torfunesi Birta Ingadóttir 8,50
Tesla frá Ásgarði vestri Jón Herkovic 8,49
Hrafn frá Breiðholti í Flóa Sigurbjörn Bárðarson 8,49
Amor frá Reykjavík Bertha María Waagfjörð 8,48
Sylvía frá Kvíarhóli Viðar Ingólfsson 8,48
Hríma frá Kerhóli Haukur Tryggvason 8,43
Björk frá Vestra-Fíflholti Kári Steinsson 8,42
Arion frá Miklholti Arnar Máni Sigurjónsson 8,41
Gígjar frá Bakkakoti Róbert Bergmann 8,36
Sóldís frá Heimahaga Jón Finnur Hansson 8,34
Sigur frá Auðsholtshjáleigu Matthías Leó Matthíasson 8,33
Blæja frá Reykjavík Svandís Beta Kjartansdóttir 8,29
Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,24
Orka frá Skógarnesi Arnar Máni Sigurjónsson 8,24
Hamar frá Húsavík Barla Catrina Isenbuegel 8,08

Barnaflokkur gæðinga
Knapi Hross Einkunn
Sigurður Ingvarsson Ísak frá Laugamýri 8,53
Alexander Þór Hjaltason Harpa Dama frá Gunnarsholti 8,48
Helga Rún Sigurðardóttir Steinn frá Runnum 8,34
Hrafnar Freyr Leósson Tindur frá Álfhólum 8,33
Hrafnar Freyr Leósson Meyvant frá Álfhólum 8,32
Helga Rún Sigurðardóttir Fannar frá Skíðbakka III 8,30
Helga Rún Sigurðardóttir Hannes frá Selfossi 8,30
Valdís Mist Eyjólfsdóttir Gnótt frá Syðra-Fjalli I 8,26
Hrafnar Freyr Leósson Heiðar frá Álfhólum 8,25
Elísabet Emma Björnsdóttir Moli frá Mið-Fossum 8,25
Alexander Þór Hjaltason Salka frá Mörk 8,25
Viktor Leifsson Biskup frá Sigmundarstöðum 8,21
Sólbjört Elvira Sigurðardóttir Eldþór frá Hveravík 8,20
Oliver Sirén Matthíasson Glæsir frá Traðarholti 8,19
Viktor Leifsson Glaður frá Mykjunesi 2 8,17
Emilía Íris Ívarsd. Sampsted Erró frá Höfðaborg 8,13
Líf Isenbuegel Hugrún frá Blesastöðum 1A 8,09
Carin Celine Bönström Ögri frá Ólafsbergi 7,84
Guðrún Lára Davíðsdóttir Kornelíus frá Kirkjubæ 7,02
Líf Isenbuegel Svörður frá Hafsteinsstöðum 0,00

Unglingaflokkur gæðinga
Knapi Hross Einkunn
Lilja Rún Sigurjónsdóttir Sigð frá Syðri-Gegnishólum 8,69
Sigurbjörg Helgadóttir Elva frá Auðsholtshjáleigu 8,56
Gabríel Liljendal Friðfinnsson Ólsen frá Egilsá 8,55
Ragnar Snær Viðarsson Saga frá Kambi 8,48
Hrefna Kristín Ómarsdóttir Háfleygur frá Álfhólum 8,48
Þórhildur Helgadóttir Sigga frá Reykjavík 8,47
Ragnar Snær Viðarsson Fjölnir frá Hólshúsum 8,41
Þórhildur Helgadóttir Kóngur frá Korpu 8,38
Bertha Liv Bergstað Segull frá Akureyri 8,37
Hrefna Kristín Ómarsdóttir Lás frá Jarðbrú 1 8,34
Katrín Dóra Ívarsdóttir Óðinn frá Hólum 8,33
Selma Dóra Þorsteinsdóttir Orka frá Búðum 8,33
Hekla Eyþórsdóttir Garri frá Strandarhjáleigu 8,32
Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Hvirfill frá Haukagili Hvítársíðu 8,32
Hrafnhildur Klara Ægisdóttir Svenni frá Reykjavík 8,32
Katharina Hochstoeger Sunna frá Fellskoti 8,31
Andrea Óskarsdóttir Orkubolti frá Laufhóli 8,24
Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Fregn frá Strandarhöfði 8,23
Hrefna Kristín Ómarsdóttir Bára frá Grímsstöðum 8,22
Sigríður Birta Guðmundsdóttir Abel frá Flagbjarnarholti 8,10
Hekla Eyþórsdóttir Flís frá Hemlu I 8,08
Sigríður Birta Guðmundsdóttir Maístjarna frá Neðra-Seli 7,87
Jóna Kolbrún Halldórsdóttir Gefjun frá Bjargshóli 8,05
Gabríel Liljendal Friðfinnsson Valur frá Eystri-Hól 0,00

B flokkur ungmenna
Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 8,60
Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 8,42
Hrund Ásbjörnsdóttir Rektor frá Melabergi 8,41
Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Lífeyrissjóður frá Miklabæ 8,40
Eva Kærnested Styrkur frá Skák 8,39
Anna Sager Sesar frá Rauðalæk 8,38
Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 8,37
Eygló Hildur Ásgeirsdóttir Saga frá Dalsholti 8,35
Hanna Regína Einarsdóttir Míka frá Langabarði 8,35
Hildur Dís Árnadóttir Stofn frá Akranesi 8,32
Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 8,30
Indíana Líf Blurton Stormur frá Mosfellsbæ 8,17
Aníta Rós Kristjánsdóttir Samba frá Reykjavík 8,16
Hanna Regína Einarsdóttir Ástríkur frá Skálpastöðum 8,12
Brynja Líf Rúnarsdóttir Lúðvík frá Laugarbökkum 8,04
Hildur Dís Árnadóttir Röst frá Eystra-Fróðholti 8,02
Brynja Líf Rúnarsdóttir Ósk frá Árbæjarhjáleigu II 7,78
Brynja Líf Rúnarsdóttir Nökkvi frá Pulu 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar