Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Samskipadeildin: Liðin kynnt til leiks

  • 17. febrúar 2026
  • Fréttir
Níu lið taka þátt í ár með fjölbreyttan bakgrunn keppenda

Nú styttist óðum í að flautað verði til leiks í Samskipadeildinni – áhugamannadeild Spretts. Fyrsta mótið er Eiðfaxi TV fjórgangur (V2), sem fram fer í Samskipahöllinni fimmtudaginn 19. febrúar kl. 18:30. Fyrir þá sem ekki komast í höllina verður sýnt beint frá viðburðinum á Eiðfaxa TV.

Í deildinni keppa níu lið sem hvert hefur á að ráða fimm knöpum auk þjálfara. Knaparnir koma víðsvegar að úr þjóðfélaginu og hafa mismunandi bakgrunn; hér má finna allt frá flugumferðarstjórum og ljósmæðrum til iðnaðarmanna og ferðaþjónustubænda, en öll eiga þau það sameiginlegt að brenna fyrir hestamennskunni. Hér að neðan fáum við að kynnast örlítið betur liðsmönnum þeirra.

Vörðufell

Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks er lið Vörðufells. Liðið er óbreytt frá síðasta tímabili og skipað reynslumiklum knöpum.

Knapar: Guðrún Randalín Lárusdóttir (Sörla), Harpa Kristjánsdóttir (Spretti), Kolbrún Kristín Birgisdóttir (Fáki), Esther Ósk Ármannsdóttir (Spretti) og Anna Vilbergsdóttir (Spretti).

Vestlendingarnir

Liðið keppti undir merkjum Bifreiðaverkstæðis Bödda og Borgarverks á síðasta tímabili. Hér er sterkur kjarni úr Borgarfirði og af Snæfellsnesi, en Veronica Osterhammer kemur ný inn í liðið í ár.

Knapar: Ámundi Sigurðsson (Borgfirðingi), Arna Hrönn Ámundadóttir (Borgfirðingi), Eyþór Gíslason (Borgfirðingi), Veronica Osterhammer (Snæfellingi) og Gunnar Tryggvason (Snæfellingi).

Fossvélar

Sigurvegarar síðasta árs mæta til leiks með nýtt nafn, Fossvélar. Liðið er að öðru leyti óbreytt og það er ekki ólíklegt að stefnan sé sett á toppinn aftur í ár.

Knapar: Þórdís Sigurðardóttir, Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Þórunn Kristjánsdóttir og Theodóra Þorvaldsdóttir.

Þjálfari: Viðar Ingólfsson.

Trausti

Lið Trausta er óbreytt frá síðasta ári og samanstendur að stærstum hluta af knöpum úr Sörla.

Knapar: Darri Gunnarsson, Aníta Rós Róbertsdóttir, Bjarni Sigurðsson, Ragnar Stefánsson og Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir.

Þjálfari: Atli Guðmundsson.

Hótel Rangá

Það má segja að liðið hafi mætt með látum nýtt inn í deildina í fyrra og voru knapar liðsins oftar en ekki í toppbaráttunni. Tveir nýir liðsmenn koma inn fyrir þetta tímabil, þær Elín Hrönn og Klara Sif.

Knapar: Elín Hrönn Sigurðardóttir, Klara Sif Ásmundsdóttir, Sarah Maagaard Nielsen, Steingrímur Jónsson og Eyrún Jónasdóttir.

Þjálfarar: Hanna Rún og Hjörvar.

JBT Marel & Tommy Hilfiger

Liðið er skipað samhentum hópi úr Hestamannafélaginu Spretti og mætir óbreytt til leiks frá síðasta tímabili.

Knapar: Guðlaug Jóna Matthíasdóttir, Bruunja Viðarsdóttir, Hrafnhildur Blöndahl, Sigurbjörn Eiríksson og Valdimar Ómarsson.

Þjálfari: Berglind Ragnarsdóttir.

Spesían

Hjá Spesíunni ríkir stöðugleiki en liðið er óbreytt á milli ára. Knaparnir koma úr nokkrum ólíkum félögum, allt frá Þyt í vestri til Geysis í suðri.

Knapar: Sverrir Sigurðsson (Þyt), Elías Árnason (Geysi), Elín Íris Fanndal (Þyt), Orri Arnarson (Geysi) og Ragnheiður Jónsdóttir (Jökli).

Hrossaræktin Strönd II

Nýir andlit í liðinu í ár eru þær Kristín Birna Óskarsdóttir og Birna Ólafsdóttir. Liðið er skipað fjölhæfu fólki sem kemur úr mörgum félögum.

Knapar: Ásta Snorradóttir, Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir, Svanbjörg Vilbergsdóttir, Kristín Birna Óskarsdóttir og Birna Ólafsdóttir.

Þjálfari: Steinar Sigurbjörnsson.

Stafholthestar

Stafholthestar kynna tvo nýja knapa til leiks í vetur, þá Pál Jóhann Pálsson og Rúrik Hreinsson.

Knapar: Hrönn Ásmundsdóttir, Patricia Ladina Hobi, Gunnar Eyjólfsson, Rúrik Hreinsson og Páll Jóhann Pálsson.

Þjálfari: Snorri Ólafsson.

Sjáumst í Samskipahöllinni 19. febrúar!

 

Fyrsta mót Samskipadeildarinnar á fimmtudag

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar