„Samstaðan hefur aldrei verið meiri“

  • 4. mars 2026
  • Fréttir

Ljósmynd: Óðinn Örn Jóhannsson

Viðtal við formann LH um stöðu verkefnisins Horses of Iceland

Linda B. Gunnlaugsdóttir formaður Landssambands hestamannafélaga hafnar alfarið þeirri gagnrýni að “hestamenn afþakki stuðning ríkisins” og það að samstöðuleysi ríki innan greinarinnar. Jelena Ohm fyrrum verkefnastjóri opnaði á umræðu um málið í Facebook pistli og í kjölfarið birtist umfjöllun á honum byggt hér á vef Eiðfaxa.

„Ég er alls ekki sammála því sem fram kom í pósti Jelenu og finnst leiðinlegt að því sé haldið fram að við séum ekki að standa saman. Ég upplifi það alls ekki þannig,“ segir Linda. Hún leggur áherslu á að samstarfið innan greinarinnar sé í raun til fyrirmyndar. „Settur var saman vinnuhópur af stjórn HOI frá öllum hagaðilum hestamennskunnar og höfum við átt mjög gott samstarf. Þetta er mjög sterkur hópur. Ég er mjög ósátt við að það sé verið að búa til eitthvað ósætti í geiranum og mjög hissa á þessum ummælum.“

Breytt stefna hjá stjórnvöldum

Að mati Lindu liggur rótin í breytingum á stefnu stjórnvalda en ekki í innra starfi greinarinnar. Ráðuneytið hafi tekið skýra stefnu um að breyta áherslum í styrkja veitingum og fara í stefnumótun.

„Þeim finnst að það þurfi að fara í heildarstefnumótun undir hatti Íslandsstofu. Það er eðlilegt að fara í stefnumótun með verkefni en hins vegar teljum við mikilvægt að sleppa ekki höndunum af HOI verkefninu á meðan sú vinna fer fram. Mesta hættan í stöðunni sé sú að dýrmæt vinna síðustu ára fari forgörðum á meðan beðið er eftir nýju kerfi. Við höfum skorað á ráðuneytið að brúa bilið og styrkja verkefnið þangað til að ný stefnumótun er unnin en því miður hefur ekki verið tekið vel í það. Það er mikilvægt að þetta vinni allt saman. Við erum búin að bjóða fram krafta okkar í þá stefnumóta vinnu og með því viljum við tryggja hag hestamennskunar í verkefninu,“ segir hún.

Ekki yfir gagnrýni hafin

Varðandi þá gagnrýni að fjármagn hafi verið skert og að viðræður hafi hafist of seint, útskýrir Linda að staða LH á þeim tíma hafi vegið þungt. „Þessi ákvörðun var tekin áður en ég tók við. Þáverandi stjórn LH taldi að fjármunum yrði betur varið í önnur verkefni, eins og markaðssetningu innanlands og rökstuddu þetta vel á þeim tíma en rúm 2 ár eru liðin frá þessari ákvörðun.“

Hvað tímasetningu viðræðna við ríkið varðar, telur Linda að hún hefði engu breytt um lokaniðurstöðuna miðað við núverandi afstöðu ráðuneytisins. „Við erum auðvitað ekki yfir gagnrýni hafin. En hvort einhver hafi sett minni pening í verkefnið eða viðræður hefðu getað byrjað fyrr – það hefði ekki breytt niðurstöðunni. Það eru ótrúlegustu málefni sem er verið að neita um styrki í dag og því kemur kannski ekki á óvart að hestamennskan sé þar á meðal.

Megum ekki gefast upp

Horft til framtíðar leggur Linda áherslu á að greinin megi ekki gefast upp. Við erum ekki sátt við niðurstöðuna en við ætlum að halda áfram og láta heyra meira í okkur. Verkefnastjórnin er enn að ráða ráðum sínum og við erum að skoða hvaða leiðir eru í stöðunni. Við ætlum ekki að láta þetta fara. Við erum að ræða það innan hópsins hvernig við getum gert þetta saman og haldið áfram að þrýsta á kerfið.

Við hvetjum hagaðila innan greinarinnar til að láta í sér heyra og skora á yfirvöld að styrkja verkefnið þangað til ný stefna hefur verið mótuð.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar