Selina og Hafþór sigurvegarar

Lið Árbæjarhjáleigu / Hjaðartúns hlaut liðaplattann í fimmgangnum. Mynd: Eiríkur Wilhelm
Í kvöld fór fram fimmgangur Fóðurblöndunnar í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu.
Eftir feyki sterka keppni og frábærar sýningar með mögnuðum skeiðsprettum var það lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sem stóð uppi sem sigurvegari en knapar þess lið lentu í 1. og 13. sæti í flokki áhugamanna og 2. og 14. í flokki atvinnumanna.

Selina Bauer vann atvinnumannaflokkinn. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson
Selina Bauer vann atvinnumannaflokkinn á Páfa frá Kjarri með 7,00 í einkunn. Hans Þór Hilmarsson var í öðru sæti á Sindra frá Hjarðartúni með 6,98 í einkunn og Sigurður Sigurðarson í þriðja sæti á Hallsteini frá Þjóðólfshaga með 6,79 í einkunn.

Hafþór Heiðar Birgisson vann áhugamannaflokkinn. Mynd: Óðinn Örn Jóhannsson
Hafþór Hreiðar Birgisson vann áhugamannaflokkinn á Þór frá Meðalfelli með 6,43 í einkunn. Í öðru sæti varð Sigurður Halldórsson á Gusti frá Efri-Þverá með 6,24 í einkunn og í þriðja varð Sanne Van Hezel á Völundi frá Skeiðvöllum með 6,21 í einkunn.
Næsta og síðasta greinin fer fram utandyra á Rangárbökkum þar sem keppt verður í tölti Hraunhamars og 100m skeiði KEMI. Keppnin fer fram þann 26. apríl og hefst kl. 18:00.
Heildarstaðan í liðakeppninni eftir fyrstu þrjár greinarnar er sú að lið Byko leiðir enn og er nú með 268,5 stig, þá lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns með 255,5 stig og þriðja Krappi með 225,5 stig. Það er þó nóg af stigum eftir í pottinum þar sem á lokakvöldinu verður keppt í tveimur greinum, tölti og skeiði. Það er því allt galopið ennþá!
Staðan í liðakeppninni
1. Byko 268,5
2. Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún 255,5
3. Krappi 225,5
4. Smiðjan Brugghús 216,5
5. Nonnenmacker 213
6. Slippfélagið 188
7. Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð 169
8. Töltrider 156
9. Vesturkot 145
10. Húsasmiðjan 143
11. Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær 137,5
12. MúrX/Klúbbhús 126,5
13. Efsta-Sel 107,5
14. Fet 77,5
Niðurstöður úr fimmgangnum
Fimmgangur F2 – 1. flokkur
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Selina Bauer Páfi frá Kjarri 7,00
2 Hans Þór Hilmarsson Sindri frá Hjarðartúni 6,98
3 Sigurður Sigurðarson Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 6,79
4 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Dökkvi frá Miðskeri 6,76
5 Elin Holst Spurning frá Syðri-Gegnishólum 6,71
6 Benjamín Sandur Ingólfsson Smyrill frá V-Stokkseyrarseli 6,40
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1-2 Selina Bauer Páfi frá Kjarri 6,83
1-2 Hans Þór Hilmarsson Sindri frá Hjarðartúni 6,83
3 Elin Holst Spurning frá Syðri-Gegnishólum 6,73
4-5 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Dökkvi frá Miðskeri 6,60
4-5 Sigurður Sigurðarson Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 6,60
6-7 Benjamín Sandur Ingólfsson Smyrill frá V-Stokkseyrarseli 6,57
6-7 Daníel Jónsson Halla frá Flekkudal 6,57
8-10 Herdís Rútsdóttir Djáknar frá Selfossi 6,40
8-10 Helga Una Björnsdóttir Hafliði frá Bjarkarey 6,40
8-10 Jóhann Kristinn Ragnarsson Vænting frá Vöðlum 6,40
11 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Viljar frá Auðsholtshjáleigu 6,23
12-13 Jón Óskar Jóhannesson Greipur frá Haukadal 2 6,20
12-13 Ólafur Ásgeirsson Hekla frá Einhamri 2 6,20
14-15 Arnhildur Helgadóttir Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti 6,13
14-15 Larissa Silja Werner Fálki frá Kjarri 6,13
16-17 Hlynur Guðmundsson Jörundur frá Eystra-Fróðholti 6,07
16-17 Hjörvar Ágústsson Ásborg frá Kirkjubæ 6,07
18-19 Vignir Siggeirsson Hrafndís frá Hemlu II 6,03
18-19 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Muggur hinn mikli frá Melabergi 6,03
20 Sigursteinn Sumarliðason Stanley frá Hlemmiskeiði 3 6,00
21 Ólafur Andri Guðmundsson Ófeig frá Syðra-Holti 5,90
22 Lea Schell Sara frá Neðra-Seli 5,87
23 Jóhanna Guðmundsdóttir Frægð frá Strandarhöfði 5,67
24 Hjörtur Magnússon Heiða frá Skák 5,60
25 Ólafur Þórisson Kilja frá Hellu 5,20
26-27 Matthías Kjartansson Flosi frá Búlandi 5,13
26-27 Vilfríður Sæþórsdóttir Eydís frá Auðsholtshjáleigu 5,13
28 Elín Árnadóttir Kristall frá Vík í Mýrdal 4,07
Fullorðinsflokkur – 2. flokkur
A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hafþór Hreiðar Birgisson Þór frá Meðalfelli 6,43
2 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá 6,24
3 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 6,21
4 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum 6,14
5 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum 6,10
6 Sara Pesenacker Flygill frá Þúfu í Landeyjum 5,52
Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Hafþór Hreiðar Birgisson Þór frá Meðalfelli 6,50
2 Sara Pesenacker Flygill frá Þúfu í Landeyjum 6,47
3 Sigurður Halldórsson Gustur frá Efri-Þverá 6,40
4 Sanne Van Hezel Völundur frá Skálakoti 6,30
5-6 Katrín Sigurðardóttir Haukur frá Skeiðvöllum 6,13
5-6 Elín Hrönn Sigurðardóttir Snilld frá Skeiðvöllum 6,13
7 Hulda Finnsdóttir Sirkus frá Torfunesi 6,07
8 Halldóra Anna Ómarsdóttir Glóblesi frá Borgareyrum 5,83
9 Brynjar Nói Sighvatsson Iða frá Vík í Mýrdal 5,80
10-11 Elísa Benedikta Andrésdóttir Moli frá Ferjukoti 5,73
10-11 Árni Sigfús Birgisson Stinni frá Ketilsstöðum 5,73
12 Theodóra Jóna Guðnadóttir Gerpla frá Þúfu í Landeyjum 5,63
13 Gísli Guðjónsson Korka frá Litlu-Brekku 5,60
14 Maiju Maaria Varis Ósk frá Fákshólum 5,53
15 Guðríður Eva Þórarinsdóttir Eva frá Reykjadal 5,40
16 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri-Þverá 5,27
17 Saga Steinþórsdóttir Dimmalimm frá Álfhólum 5,20
18 Birna Olivia Ödqvist Sjöfn frá Þjóðólfshaga 1 4,90
19 Katrín Eva Grétarsdóttir Sif frá Þorlákshöfn 4,87
20 Hjördís Rut Jónsdóttir Brimrún frá Þjóðólfshaga 1 4,83
21 Carole Herritsch Fengur frá Skipaskaga 4,67
22 Sarah Maagaard Nielsen Djörfung frá Miðkoti 4,57
23 Erlendur Árnason Sjálfur frá Borg 4,43
24 Erla Björk Tryggvadóttir Mári frá Hvoli II 4,37
25 Sandra Steinþórsdóttir Gjöf frá Oddgeirshólum 4,20
26 Þuríður Ósk Ingimarsdóttir Lilja frá Hólaborg 4,00
27 Renate Hannemann Hraunar frá Herríðarhóli 3,83