Síðasti dagur til að fá afslátt

Stóðhestabók Eiðfaxa er sannkölluð biblía hvers hrossaræktanda, enda eru jafnan vel á þriðja hundrað stóðhesta kynntir í bókinni, allt frá margreyndum gæðingafeðrum yfir í vonarstjörnur framtíðarinnar. Stóðhestar 2025 kemur út í apríl í veglegri prentútgáfu samhliða Stóðhestaveislunni sem fram fer laugardaginn 5.apríl í HorseDay höllinni.
Skráning er nú hafin í Stóðhestabókina og geta áhugasamir sent skráningu á stodhestabok@gmail.com eða maggiben@gmail.com með eftirfarandi upplýsingum:
- Nafn og IS-númer hests.
- Eina mynd af hestinum í góðum myndgæðum (ca. 1MB eða stærra) sem má birta.
- Notkunarupplýsingar hests, hvar hann verður (ef það liggur fyrir) og nafn, símanúmer og/eða netfang hjá þeim sem gefur nánari upplýsingar um notkun.
Auk þess má senda eftirfarandi upplýsingar til viðbótar (valkvætt):
- Auka mynd í góðum myndgæðum (ca. 1MB eða stærra) sem má birta.
- Logo stóðhests/hrossaræktarbús.
- Stutt lýsing á hesti, ca. 50-60 orð.
Heilsíðuauglýsing fyrir stóðhest í Stóðhestar 2025 kostar 45.000 kr. +vsk en þeir sem skrá sig í síðasta lagi, í dag, 22. febrúar, fá 25% afslátt. Skaffaðu þínum stóðhesti skemmtilegan félagsskap í sumar og skráðu hann tímanlega í stóðhestabókina!
Allar nánari upplýsingar veitir Magnús í síma 8933600 eða á tölvupóstfangið stodhestabok@gmail.com
Skráningu í bókina lýkur 15. mars