Heimsmeistaramót Siggi Óli og Fjalladís á toppnum

  • 17. desember 2024
  • Fréttir

Sigurður Óli fagnar sigri í gæðingaskeiði á NM.

Aþjóðlegur stöðulisti í gæðingaskeiði

Á heimasíðu FEIF er að finna alþjóðlega stöðulista ársins í ár byggða á einkunnagjöf í forkeppni alþjóðlegum mótum (WR). Þar eru tvær hæstu einkunnir/tími knapa og hests lagðar saman og meðaltal þeirra raðar þeim niður á stöðulista.

Á næsta ári er framundan Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss og því áhugavert að skoða þessa stöðulista sem gefa fyrirheit um það hvers er að vænta á því móti. Ljóst er þó að við eigum ekki von á því að sjá öll þessi pör á því móti auk þess að fleiri knapar munu leggja meiri metnað og orku í næsta keppnistímabil með heimsmeistaramótið í huga.

Gæðingaskeið

Efstur á stöðulistanum í gæðingaskeiði er Sigurður Óli Kristinsson á Fjalladísi frá Fornusöndum, hann varð m.a. Norðurlandameistari í þessari grein í sumar, þar sem hann keppti fyrir hönd Danmerkur. Annar á stöðulistanum er hin þýska Laura Enderes á Fannari von der Elschenau. Þriðji er Landsmótssiguvegarinn í þessari grein Hinrik Bragason á Trú frá Árbakka og fjórði er Íslandsmeistarinn Jakob Svavar Sigurðsson á Erni frá Efri-Hrepp. Fimmti er svo Guðmundur Einarsson á Draumi från Tängmark, Guðmundur keppir fyrir hönd Svíþjóðar.

Ríkandi heimsmeistari í gæðingaskeiði er Elvar Þormarsson en hann keppti þá á Fjalladís sem Sigurður Óli keppir á nú. Líkur eru á því að alllir þessi knapar verði á meðal þátttakenda á næsta Heimsmeistaramóti. Þeir Hinrik og Jakob Svavar eru báði í landsliðshópi Íslands.

 

# Knapi Hestur Einkunn
1 Sigurður Óli Kristinsson Fjalladís frá Fornusöndum 9,005
2 Laura Enderes Fannar von der Elschenau 8,67
3 Hinrik Bragason Trú frá Árbakka 8,585
4 Jakob Svavar Sigurðsson Ernir frá Efri-Hrepp 8,5
5 Guðmundur Einarsson Draumur från Tängmark 8,355

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar