Sigurbjörn hættir sem A landsliðsþjálfari

Sigurbjörn Bárðason lyftir hér upp liðabikarnum sem Ísland vann á HM í ágúst
Sigurbjörn Bárðason hefur gegnt starfi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í hestaíþróttum síðan árið 2017. Hann hefur nú tilkynnt starfslok sín sem landsliðsþjálfari en hér á eftir kemur tilkynning frá Sigurbirni.
Eftir að hafa gegnt starfi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í hestaíþróttum frá árinu 2017 og átt þar áður sæti í landsliðsnefnd um áraraðir er nú komið að leiðarlokum.
Ég hef í áratugi tengst íslenska landsliðinu og komið að því að móta starfið frá ýmsum hliðum, allt frá frumbernsku íþróttarinnar. Á árunum 2017-2018 réðst ég ásamt landsliðsnefnd í heildarendurskoðun á öllu landsliðs- og afreksstarfi LH með það fyrir augum að bæta árangur og umgjörð landsliðsins, en einnig með það meginmarkmið að gjörbylta yngri flokka starfi sambandsins. Fólst sú endurskoðun meðal annars í því að horfa í auknu mæli til annarra íþróttagreina m.a. þegar kemur að skipulagningu afreksstarfsins, agamálum, uppbyggingu liðsanda, reglusemi, unglingastarfs og fleira. Þannig var meginfókusinn settur á knapann sem afreksíþróttamann.
Ekki verður um það deilt að árangurinn hefur verið stórkostlegur, jafnt innan vallar sem utan, þannig að eftir hefur verið tekið, langt út fyrir raðir hestafólks. En einnig þannig að önnur landslið í Íslandshestaheiminum hafa tekið afreksstarf LH, undir minni stjórn, til fyrirmyndar. Á þeim þremur heimsleikum sem ég hef leitt íslenska landsliðið hefur árangurinn verið mun betri en áður hefur þekkst. Þakka ég það meðal annars þeirri stefnu sem unnið hefur verið eftir, ásamt frábæru samstarfsfólki og snilldar knöpum sem hafa verið tilbúnir til að taka þátt í vegferðinni.
Oft hefur gefið á bátinn og þurft að taka erfiðar ákvarðanir, en það er hlutverk þeirra sem standa í brúnni hverju sinni að taka ákvarðanir, standa við þær og trúa að þær séu íþróttinni til heilla.
Nú stendur yfir vinna hjá LH um framtíðarsýn í afreks- og landslilðsmálum LH sem fela m.a. í sér breytingar á starfi landsliðsþjálfara. Eftir að hafa farið yfir stöðuna með formanni LH og landsliðsnefndar er það sameiginleg ákvörðun okkar að leiðir skilji og nýtt fólk verði fengið til að halda utan um landsliðsstarfið í nýrri mynd
Ég lít stoltur um öxl og vil af þessu tilefni þakka öllu því góða fólki sem ég hef unnið með öll þessi ár, fyrir samstarfið og frábær samskipti. Jafnframt óska nýju fólki velfarnaðar og góðs gengis í þessu krefjandi en skemmtilega verkefni.
Áfram Ísland! Áfram íslenski hesturinn!
Sigurbjörn Bárðarson