Áskriftarskilmálar fyrir áskriftir EiðfaxaTV

-------- English Below --------
Áskriftarskilmálar fyrir áskriftir EiðfaxaTV
  1. Áskrift veitir áskrifanda aðgang að þeim sjónvarpsstöðvum og/eða áskriftarveitum sem áskrifandi hefur valið að greiða fyrir.
  2. Áskriftin er einungis til heimilis- og einkanota. Óheimilt er að dreifa áskriftinni með einhverjum þeim hætti að hún nýtist á fleiri stöðum en á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins, t.d. á milli heimila, vinnustaða o.s.frv. Eins er áskrifanda óheimilt að taka upp efni úr dagskrá nema til einkaafnota á skráðum notkunarstað áskriftarbúnaðarins.
  3. Áskriftargjald hvers mánaðar ber áskrifanda að greiða fyrir fram samkvæmt þeim verðskráreglum sem eru í gildi á hverjum tíma hjá EiðfaxaTV.
  4. Brjóti áskrifandi gegn áskriftarskilmálum þessum, til dæmis, en takmarkast ekki við, að reynt sé að komast hjá gjaldtöku á óheimilan hátt eða koma gjaldskyldu yfir á óskyldan eða ógjaldfæran aðila, er EiðfaxaTV heimilt, án fyrirvara, að loka á áskrift og krefjast greiðslu sem EiðfaxiTV áætlar að af sanngirni bæti fyrir brot áskrifanda. Þá kann EiðfaxiTV að leggja fram kæru til lögreglu vegna slíkrar háttsemi.
  5. EiðfaxiTV hefur heimild til þess að breyta áskriftarskilmálum. Allar breytingar á skilmálum skulu tilkynntar með skýrum hætti með a.m.k. mánaðar fyrirvara á heimasíðu EiðfaxaTV og/eða á útgefnum reikningum. Þar skal kynnt í hverju breytingar felast og eftir atvikum veittar upplýsingar um rétt áskrifanda til þess að segja upp gildandi samningi vegna breytinganna.
  6. EiðfaxiTV áskilur sér rétt að vísa áskrifanda úr viðskiptum sýni hann ítrekaða ósæmilega hegðun í garð starfsfólks. Með ósæmilegri hegðun er átt við t.d. (en ekki eingöngu) ógnanir af einhverjum toga eða hótanir af einhverjum toga. Einnig er heimilt að vísa áskrifanda úr viðskiptum af öðrum ástæðum, svo sem vegna vanskila.
  7. EiðfaxiTV áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum vegna nýrra áskriftarleiða, án þess að tilkynna öllum áskrifendum um þær breytingar enda hafa þær breytingar ekki áhrif á gildandi áskriftir.
  8. Rísi upp ágreiningur um túlkun og skýringu á skilmálum þessum skal leitast við að ná sáttum með heiðarleika og sanngirni að leiðarljósi. Getur áskrifandi sent Sýn kvörtun og eftir atvikum rekið mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Skilmálar þessir gilda frá og með 1. janúar 2026 og þar til nýir taka gildi.

_________________________

Subscription Terms and Conditions of EiðfaxaTV
  1. A subscription grants the subscriber access to the television channels and/or subscription services that the subscriber has selected and paid for at any given time.
  2. The subscription is intended solely for private, household use. It is prohibited to distribute or use the subscription in any manner that allows it to be used at locations other than the registered place of use of the subscription equipment, such as between households, workplaces, or other locations. The subscriber is also prohibited from recording or storing content from the programming except for private use at the registered place of use of the subscription equipment.
  3. The subscription fee for each month shall be paid in advance in accordance with EiðfaxaTV’s applicable price list at any given time.
  4. If the subscriber breaches these terms and conditions, including but not limited to attempts to evade payment by unlawful means or to transfer payment obligations to an unrelated or non-chargeable party, EiðfaxaTV is entitled, without prior notice, to suspend access to the subscription and to demand payment that EiðfaxaTV reasonably considers to compensate for the subscriber’s breach. EiðfaxaTV further reserves the right to file a complaint with the police in relation to such conduct.
  5. EiðfaxaTV reserves the right to amend these subscription terms and conditions. All changes shall be clearly notified with at least one month’s notice on EiðfaxaTV’s website and/or on issued invoices. The notification shall describe the nature of the changes and, where applicable, provide information regarding the subscriber’s right to terminate the subscription due to such changes.
  6. EiðfaxaTV reserves the right to refuse service to a subscriber who demonstrates repeated inappropriate conduct toward staff. Inappropriate conduct includes, but is not limited to, threats, intimidation, or other comparable behavior. EiðfaxaTV may also refuse service for other reasons, such as non-payment.
  7. EiðfaxaTV reserves the right to amend these terms and conditions due to the introduction of new subscription plans, without notifying all subscribers, provided that such amendments do not affect existing subscriptions.
  8. Should a dispute arise regarding the interpretation or application of these terms and conditions, the parties shall seek to resolve the matter amicably, guided by honesty and fairness. The subscriber may submit a complaint to EiðfaxaTV and, where applicable, pursue legal action before the District Court of Reykjavík.

These terms and conditions apply from 1 January 2026 and remain in force until replaced by new terms and conditions