Skráning hafin á Íslandsmótið í gæðingalist

Fyrsta Íslandsmótið í gæðingalist verður haldið í Samskipahöllinni í Spretti dagana 29.apríl – 1.maí 2025.
Á Landsþingi sl. haust var samþykkt að halda sérstakt Íslandsmót í gæðingalist í lok innanhússtímabils, eða fyrir 15.maí ár hvert. Þetta mót kemur því í stað þess að keppt er í gæðingalist á Íslandsmótum utanhúss. Íslandsmeistari verður krýndur í öllum flokkum, nema 1.flokk fullorðinna sem telst sem sýningargrein.
Keppt verður í einum styrkleikaflokki í yngri flokkum en tveimur styrkleikaflokkum í fullorðinsflokki. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
- Barnaflokkur – stig 2
- Unglingaflokkur – stig 2
- Ungmennaflokkur – stig 2
- Fullorðinsflokkur (1.flokkur) – stig 2 (sýningargrein)
- Fullorðinsflokkur (meistaraflokkur) – stig 3
Keppni fer fram eftir reglugerð LH um Gæðingalist:
Knapar eru hvattir til að taka dagana frá og ljúka innanhúss keppnistímabilinu á Íslandsmóti í gæðingalist. Fyrirspurnir má senda á sprettur@sprettur.is
Skráning fer fram á sportfengur.com, skráning stendur yfir 11.apríl til og með 22.apríl nk. Skráningagjöld eru 13.000kr fyrir yngri flokka og 15.000kr fyrir fullorðinsflokka.