Skráning hafin á Mývatn Open

  • 14. febrúar 2023
  • Fréttir
Mótið verður helgina 3.-4. mars á Stakhólstjörn

Ísmótið Mývatn Open verður haldið helgina 3.-4. mars 2023 á Stakhólstjörn við Skútustaði í Mývatnssveit. Keppt verður í B-flokki og tölti (2 styrkleikaflokkar), A-flokki (1 styrkleikaflokkur) og 100 m. skeiði. Hestamannafélagið Þjálfi býður í reiðtúr út á frosið Mývatn á föstudeginum og er öllum velkomið að taka þátt.

Skráning er á sportfengur.com. Skráningurfrestur er til kl. 23:00 miðvikudaginn 1.mars. Skráningargjald er 3.500 kr. á hverja skráningu. Ekki verður tekið við greiðslu á staðnum. Afskráningar verða að hafa borist fyrir kl. 9:00 laugardaginn 4.mars.

Dagskrá:

Föstudagur 3. mars
Hópreið um Mývatn kl. 16:30, allir velkomnir, ekkert þáttökugjald. Hópreiðin fer frá Álftabáru, bílastæði eru við Sel-hótel Mývatn.

Laugardagur 4.mars
10:00 Keppni hefst
B-flokkur, 2. og 1. flokkur, forkeppni og úrslit.
Forkeppni riðin með frjálsu vali. Sýna skal hægt tölt, greitt tölt, brokk og frjálst. Úrslitum er stjórnað af þul.

A flokkur, forkeppni og úrslit. Forkeppni riðin með frjálsu vali. Sýna skal tölt, brokk, skeið og frjálst úrslitum er stjórnað af þul.

Tölt, 2. og 1. flokkur, forkeppni og úrslit. Forkeppni riðin með frjálsu vali. Sýna skal hægt tölt, greitt tölt, tölt með hraðabreytingum fram og tilbaka. Úrslitum er stjórnað af þul.

100m. skeið

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar