Skráning í opnar greinar á Fjórðungsmóti

  • 12. júní 2025
  • Fréttir
Fjórðungsmót Vesturlands fer fram dagana 3. - 6. júlí í Borgarnesi.

Það styttist í Fjórðungsmótið og er skráning hafin í opnar greinar á mótinu en þær eru tölt T1 og T3 í tveimur styrkleikaflokkum og 100 m. flugskeið.

Skráning fer fram á Sportfeng, mótsnúmer IS2025SNF175, skráningarfrestur er á miðnætti 27. júní.

  • Tölt T1 – Meistaraflokkur – Fyrstu 30 sem skrá – Skráningargjald 10.000 kr.
  • Tölt T3 – Opinn flokkur – Fyrstu 40 sem skrá – Skráningargjald 10.000 kr.
  • Tölt T3 – 17 ára og yngri – Fyrstu 30 sem skrá – Skráningargjald 7.000 kr.
  • 100 m. flugskeið – Fyrstu 30 sem skrá – Skráningargjald 7.000 kr.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar