Skráningar á kynbótasýningar vorsins

Opnað verður á skráningar á kynbótasýningar í dag, þann 5. maí, kl. 9:00. Skráning og greiðsla fer fram eins og síðustu ár í gegnum heimasíðu RML en á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar.
Hér fyrir neðan má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist sem eru 30 hross.
Verð fyrir fullnaðardóm er 44.600 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 33.960 kr. Er þetta hækkun frá því í fyrra þegar verð fyrir fullnaðardóm var 40.675 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 31.000 kr.
