Hvaða feður eiga flest folöld?
Senn styttist í nýtt ár, þannig nú er rétti tíminn til að fara inn í WorldFeng og ganga frá skráningum þessa árs. Gott er að fara í gegnum eftirfarandi atriði:
- Er búið að skrá öll folöld?
- Er búið að skrá fang á allar hryssur sem haldið var í sumar?
- Er er búið að skrá geldingu á þá fola sem geltir voru í sumar?
- Er búið að gera grein fyrir afdrifum hrossa?
- Er litaskráning í lagi, ef til vill hefur gleymst að skrá lit á eitthvert hross?
- Hefur gleymst að ganga frá eigandaskiptum?
- Hafa öll hross skráðan umráðamann?
- Er netfangið þitt í WorldFeng rétt?
Þegar þetta er ritað er búið að grunnskrá 3.306 folöld, af þeim hafa 2.379 skráð örmerki. Samkvæmt skráningum í WF hefur fjöldi fæddra folalda síðustu ár verið rétt innan við 6.000, þannig enn er slatti af folöldum óskráð. Í töflu 1 er hægt að sjá fjölda skráðra folalda eftir svæðum.

Þó aðeins sé búið að skrá rúmlega 50% fæddra folalda þá er gaman að skoða hvað feður eiga flest þessara folalda. Þegar niðurstöður voru teknar út úr WF Þann 9/12 2025 eiga 32 hestar 20 eða fleiri folöld, sjá nánar í töflu 2. Það þýðir eins og staðan er í dag að 34% skráðar folalda undan 32 feðrum.

Ef eitthvað er óljóst varðandi skýrsluhaldið er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin agg@rml.is eða halla@rml.is.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar um skráningar í heimarétt WF
www.rml.is
„Okkur líður vel í Svíþjóð og höfum komið okkur vel fyrir“
„Við skuldum Íslandsmóti að gera þessa tilraun“