Slaktaumatölt í Samskipahöllinni
Hrönn Ásmundsdóttir stóð efst í þessari grein í Samskipadeildinni á síðasta keppnistímabili
Eftir frábæra byrjun á tímabilinu í fjórgangi er nú komið að keppni í Slaktaumatölti (T4) í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts. í kvöld, fimmtudaginn 5. mars mæta knapar og hestar í braut. Keppnin er í boði Sveiflu og hvetjum við alla til að kynna sér flott úrval á sveifla.is.
Mótið er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, fyrir þá sem ekki komast á mótsstað.
Dagskrá kvöldsins
17:00: Húsið opnar – Upplagt að mæta snemma og koma sér í gírinn.
17:00 – 18:30: Matseðill kvöldsins frá Flóru.
18:30: Keppnin hefst stundvíslega.
Mundu: Það er frítt inn á öll kvöld Samskipadeildarinnar! Við hvetjum alla hestaunnendur til að mæta, njóta góðra veitinga og búa til þá frábæru stemningu sem deildin er þekkt fyrir.
Í fyrra voru það þau Hrönn Ásmundsdóttir og Rafn frá Melabergi sem fóru með sigur af hólmi í eftirminnilegri keppni. Það verður spennandi að sjá hvort hún endurtaki leikinn eða aðrir knapar taki sigurinn, hér fyrir neðan er ráslisti kvöldsins.
| Holl | Knapi | Hestur | Lið |
| Tölt T4 Fullorðinsflokkur – 2. flokkur | |||
| 1 | Elín Hrönn Sigurðardóttir | Snilld frá Skeiðvöllum | Hótel Rangá |
| 1 | Sverrir Sigurðsson | Þór frá Höfðabakka | Lið Spesíunnar |
| 1 | Hrönn Ásmundsdóttir | Rafn frá Melabergi | Stafholthestar |
| 2 | Anna Vilbergsdóttir | Jörp frá Mið-Fossum | Vörðufell |
| 2 | Glódís Helgadóttir | Ötull frá Narfastöðum | Frosti |
| 2 | Arnhildur Halldórsdóttir | Heiðrós frá Tvennu | Réttverk |
| 3 | Gunnar Már Þórðarson | Júpíter frá Votumýri 2 | Fossvélar |
| 3 | Inga Kristín Campos | Sigurrós frá Akranesi | Rembrandt |
| 3 | Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir | Hnokki frá Áslandi | Trausti |
| 4 | Kristinn Karl Garðarsson | Veigar frá Grafarkoti | Nýsmíði |
| 4 | Gunnar Tryggvason | Fönix frá Brimilsvöllum | Vestlendingarnir |
| 4 | Árni Geir Norðdahl Eyþórsson | Svikari frá Litla-Laxholti | Sveitin |
| 5 | Valdimar Ómarsson | Afródíta frá Álfhólum | JBT Marel & Tommy Hilfiger |
| 5 | Kristín Birna Óskarsdóttir | Hringadrottning frá Kolsholti 3 | Hrossaræktin Strönd II |
| 5 | Þórdís Sigurðardóttir | Gljái frá Austurkoti | Fossvélar |
| 6 | Ragnheiður Jónsdóttir | Sóley frá Ósabakka | Lið Spesíunnar |
| 6 | Kolbrún Kristín Birgisdóttir | Stirnir frá Blesastöðum 2A | Vörðufell |
| 6 | Aníta Eik Kjartansdóttir | Hrafn frá Þúfu í Kjós | Nýsmíði |
| 7 | Gunnar Eyjólfsson | Rökkvi frá Litlalandi Ásahreppi | Stafholthestar |
| 7 | Erna Jökulsdóttir | Sól frá Kirkjubæ | Rembrandt |
| 7 | Aníta Rós Róbertsdóttir | Þeyr frá Þjórsárbakka | Trausti |
| 8 | Eyþór Jón Gíslason | Nökkvi frá Hvítárvöllum | Vestlendingarnir |
| 8 | Kristín Ingólfsdóttir | Ásvar frá Hamrahóli | Frosti |
| 8 | Klara Sif Ásmundsdóttir | Eldur frá Hvolsvelli | Hótel Rangá |
| 9 | Rósa Valdimarsdóttir | Kopar frá Álfhólum | Réttverk |
| 9 | Guðmundur Ásgeir Björnsson | Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 | Sveitin |
| 9 | Svanbjörg Vilbergsdótti | Svarthöfði frá Efri-Skálateigi 1 | Hrossaræktin Strönd II |
| 10 | Sigurbjörn Eiríksson | Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ | JBT Marel & Tommy Hilfiger |
| 10 | Patricia Ladina Hobi | Glæsir frá Akranesi | Stafholthestar |
| 10 | Sigurður V. Ragnarsson | Alda frá Skipaskaga | Rembrandt |
| 11 | Elín Íris Jónasdóttir | Rökkvi frá Lækjardal | Lið Spesíunnar |
| 11 | Darri Gunnarsson | Týr frá Miklagarði | Trausti |
| 11 | Rúnar Bragason | Andi frá Skálakoti | Sveitin |
| 12 | Guðrún Randalín Lárusdóttir | Gleði frá Neðra-Ási II | Vörðufell |
| 12 | Erla Guðný Gylfadóttir | Roði frá Margrétarhofi | Fossvélar |
| 12 | Ámundi Sigurðsson | Maísól frá Miklagarði | Vestlendingarnir |
| 13 | Anna Kristín Kristinsdóttir | Styrkur frá Stokkhólma | Réttverk |
| 13 | Sarah Maagaard Nielsen | Sólbirta frá Miðkoti | Hótel Rangá |
| 13 | Auður Stefánsdóttir | Sara frá Vindási | Frosti |
| 14 | Þóra Guðrún Skúladóttir | Beitir frá Gunnarsstöðum | Nýsmíði |
| 14 | Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir | Ófeigur frá Selfossi | Hrossaræktin Strönd II |
| 14 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Ágúst frá Hrauni | JBT Marel & Tommy Hilfiger |
Slaktaumatölt í Samskipahöllinni
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Kynbótasýningar 2026 og val kynbótahrossa á Landsmót