Spennandi fjórgangsmót í Suðurlandsdeild Eques

  • 9. mars 2026
  • Fréttir

Frá verðlaunaveitingu í úrslitum atvinnumanna í fjórgangi Suðurlandsdeildar árið 2025

Keppni hefst klukkan 18:30 í beinni á EiðfaxaTV

Þriðja keppnisgrein Suðurlandsdeildar Eques í hestaíþróttum fer fram á morgun, þriðjudaginn 10.mars. Keppni hefst klukkan 18:30 en Rangárhöllin opnar klukkan 17:30 þar sem veitingasalan verður á sínum stað.

Nú verður keppt í fjórgangi og líkt og áður eru það bæði atvinnu- og áhugamenn sem etja kappi en keppt er til úrslita í báðum þessum flokkum. Á síðasta móti var keppt í parafimi og slaktaumatölti og er staðan í liðakeppni jöfn og spennandi eftir þessar tvær greinar. Einungis munar sjö stigum á liðinu í efsta og fimmta sæti.

Staða efstu liða

  1. Miðkot/Skeiðvellir 77 stig
  2. Vöðlar/Snilldarverk 76 stig
  3. Hestefli 75 stig
  4. Krappi 73 stig
  5. Bakkakoti 70 stig

Flott pör á ráslista

Þegar rýnt er í ráslista fyrir kvöldið má sjá mörg sterk pör og þeirra á meðal eru sigurvegararnir í atvinnumannaflokki frá því í fyrra þau Stella Sólveig Pálmarsdóttir og Stimpill frá Strandarhöfði en hún er eina parið á ráslista sem reið til úrslita í fjórgangi Suðurlandsdeildar á síðasta ári. Hrauney frá Flagbjarnarholti var í úrslitum í þessari grein í fyrra með Gyðu Sveinbjörgu sem knapa en nú keppir á henni Selina Bauer. Þær fá verðuga keppni í ár frá sterkum pörum sem hafa náð góðum árangri í fjórgangi og má þar nefna Bjarneyju Jónu Unnsteinsdóttur á Hrafni frá Ytri-Skógum, Heklu Rán Hannasdóttur á Ísberg frá Hákoti, Gústaf Ásgeir á Útherja frá Blesastöðum, Heklu Katharínu Kristinsdóttur á Rökkva frá Heysholti og Sigurði Sigurðarsyni á Þrótti frá Hvammi. Marga fleiri vel ríðandi frábæra knapa í þessum flokki mætti nefna og ljóst að hart verður barist um efstu sæti.

Í flokki áhugamanna er einungis að finna eitt keppnispar af þeim sem voru í úrslitum Suðurlandsdeildar á síaðsta ári en það er Soffía Sveinsdóttir á Skuggaprinsi frá Hamri sem urðu í sjötta sæti. Þá er einnig að finna á ráslista Ása frá Hásæti sem var í úrslitum í fyrra en mætir nú með öðrum knapa, Pernillu Göransson.  Asa Ljungberg mætir þá á Fengsæl frá Jórvík sem var í A-úrslitum í flokki atvinnumanna í fyrra ásamt eiginmanni Aasu, Ólafi Ásgeirssyni. Líkt og í atvinnumannaflokknum eru margir í þessum áhugamannaflokki sem gætu gert góða hluti líkt og Sarah Maagaard Nielsen á Gjálp frá Miðkoti sem reið til úrslita í þessari grein í Samskipadeildinni fyrir tveimur vikum.

Allir sem geta eru hvattir til að mæta í Rangárhöllina á morgun til að njóta góðra hrossa en Samverk er aðalstyrktaraðili kvöldsins og býður gestu velkoma. Auk þess verður mótið í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Ráslisti

Suðurlandsdeild Eques í hestaíþróttum 2026
Fjórgangur Samverks
Holl At/Á Knapi Hestur Lið
1 Á Elísabet Gísladóttir Víkingur frá Hrafnsholti Wicked viking
1 Á Kristinn Karl Garðarsson Veigar frá Grafarkoti Krappi
2 At Ólafur Þórisson Sleipnir frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
2 At Eva María Aradóttir Drottning frá Hjarðarholti Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
3 Á Marie Hollstein Títan frá Margrétarhofi Bakkakot
3 Á Þórdís Sigurðardóttir Árvakur frá Minni-Borg Raflagnaþjónusta Selfoss
4 At Ingibjörg Sóllilja Baltasarsdóttir Hrafn frá Vatni Húsasmiðjan
4 At Stella Sólveig Pálmarsdóttir Stimpill frá Strandarhöfði Vöðlar/Snilldarverk
5 Á Brynja Pála Bjarnadóttir Blesi frá Heysholti Árbakki/Árbæjarhjáleiga
5 Á Hulda Jónsdóttir Dökkvi frá Miðskeri Hestefli
6 At Fríða Hansen Brenna frá Leirubakka Kastalabrekka
6 At Malin Marianne Andersson Vígur frá Einiholti Wicked viking
7 Á Hallgrímur Birkisson Dofri frá Þjóðólfshaga 1 Krappi
7 Á Soffía Sveinsdóttir Skuggaprins frá Hamri Miðkot/Skeiðvellir
8 At Róbert Bergmann Dökkvi frá Bakkakoti Bakkakot
8 At Hekla Katharína Kristinsdóttir Rökkvi frá Heysholti Árbakki/Árbæjarhjáleiga
9 Á Þorbjörn Hreinn Matthíasson Sambó frá Kanastöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
9 Á Lilja Hrund Pálsdóttir Reykur frá Prestsbakka Húsasmiðjan
10 At Þorgils Kári Sigurðsson Gramur frá Syðra-Velli Raflagnaþjónusta Selfoss
10 At Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Mjallhvít frá Sumarliðabæ 2 Hestefli
11 Á Aasa Ljungberg Fengsæll frá Jórvík Vöðlar/Snilldarverk
11 Á Anne Röser Lokkadís frá Þóreyjarnúpi Kastalabrekka
12 At Ásdís Brynja Jónsdóttir Rós frá Fákshólum Wicked viking
12 At Gústaf Ásgeir Hinriksson Útherji frá Blesastöðum 1A Árbakki/Árbæjarhjáleiga
13 Á Rúnar Freyr Rúnarsson Kári frá Björgum Bakkakot
13 Á Pernilla Therese Göransson Ási frá Hásæti Húsasmiðjan
14 At Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Krappi
14 At Sigríkur Jónsson Fjöður frá Brattholti Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
15 Á Malou Sika Jester Bertelsen Kakali frá Glæsibæ Kastalabrekka
15 Á Snæbjörg Guðmundsdóttir Dís frá Bjarnanesi Hestefli
16 At Katrín Sigurðardóttir Ólína frá Skeiðvöllum Miðkot/Skeiðvellir
16 At Katrín Eva Grétarsdóttir Dögg frá Þorlákshöfn Raflagnaþjónusta Selfoss
17 Á Hannes Brynjar Sigurgeirson Hrókur frá Varmalandi Vöðlar/Snilldarverk
17 Á Jónas Már Hreggviðsson Kolbeinn frá Hrafnsholti Wicked viking
18 At Svanhildur Guðbrandsdóttir Eik frá Syðri-Fljótum Krappi
18 At Dagbjört Skúladóttir Óskadís frá Miðkoti Kastalabrekka
19 Á Nanna Jónsdóttir Hrefna frá Efri-Úlfsstöðum Syðri-Úlfsstaðir/Traðarás
19 Á Arney Ólöf Arnardóttir Höfða-Rún frá Egilsstaðakoti Árbakki/Árbæjarhjáleiga
20 At Hekla Rán Hannesdóttir Ísberg frá Hákoti Bakkakot
20 At Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hrafn frá Ytri-Skógum Hestefli
21 Á Sarah Maagaard Nielsen Gjálp frá Miðkoti Miðkot/Skeiðvellir
22 At Selina Bauer Hrauney frá Flagbjarnarholti Húsasmiðjan
22 At Ásmundur Ernir Snorrason Feykir frá Strandarhöfði Vöðlar/Snilldarverk
23 Á Emma Goltz Ösp frá Áskoti Raflagnaþjónusta Selfoss

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar