Spennandi ráslisti í gæðingalistinni
Myndir: Carolin Giese @linaimages
Það styttist í næstu grein í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum en á föstudaginn verður keppt í gæðingalist. Líkt og áður fer keppni fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli og hefst keppni kl. 19:00.
Ráslistar eru klárir og er sigurparið frá því í fyrra, Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði, númer sjö í rásröð. Ásmundur leiðir í einstaklingskeppninni og ætlar sér eflaust efsta sætið á pallinum á föstudaginn. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðsstöðum urðu í öðru sæti í fyrra, þremur kommum neðar en Ási, og verður gaman að sjá hvað þau gera á föstudaginn.
TopReiter býður gestum frítt í stúkuna og verður hlaðborðið á sínum stað en þeir sem panta fyrirfram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni. HÉR er hægt að panta á hlaðborðið.
Sýnt verður beint frá mótinu á EiðfaxaTV og mun útsending hefjast 18:40
Ráslisti fyrir gæðingalistina
- Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti Ib bílar
- Teitur Árnason Auðlind frá Þjórsárbakka Top Reiter / Sumarliðabær
- Sigurður Sigurðarson Þróttur frá Hvammi Hrímnir / Hest.is
- Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum Hjarðartún
- Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Grettir frá Hólum Ganghestar / Margrétarhof
- Glódís Rún Sigurðardóttir Vikar frá Austurási Hestvit / Árbakki
- Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Hrímnir / Hest.is
- Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku Hjarðartún
- Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Ib bílar
- Ragnhildur Haraldsdóttir Særún frá Steinnesi Ganghestar / Margrétarhof
- Jóhanna Margrét Snorradóttir Bútur frá Litla-Dal Hestvit / Árbakki
- Eyrún Ýr Pálsdóttir Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 Top Reiter / Sumarliðabær
- Þorgeir Ólafsson Aspar frá Hjarðartúni Ib bílar
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof
- Brynja Kristinsdóttir Sunna frá Haukagili Hvítársíðu Hrímnir / Hest.is
- Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni Hjarðartún
- Pierre Sandsten Hoyos Kinnungur frá Torfunesi Hestvit / Árbakki
- Árni Björn Pálsson Kriki frá Krika Top Reiter / Sumarliðabær
Spennandi ráslisti í gæðingalistinni