Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum

  • 18. febrúar 2026
  • Fréttir

Þorgeir Ólafsson og Aþena frá Þjóðólfshaga 1 unnu fimmganginn í Meistaradeildinni í fyrra og urðu Íslandsmeistarar í greininni s.l. sumar. Þorgeir mætir með nýjan hest t Mynd: Carolin Giese

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram á föstudaginn þegar keppt verður í fimmgangi.

Það eru svakalegar kanónur á ráslistanum fyrir fimmganginn. Íslandsmeistararnir  og sigur parið, Þorgeir Ólafsson og Aþena frá Þjóðólfshaga, frá því í fyrra mæta til leiks, þó ekki saman. Þorgeir mætir með Blíðu frá Bergi en Teitur Árnason mætir með Aþenu.

Hans Þór Hilmarsson mætir á Öl frá Reykjavöllum og Ásmundur Ernir Snorrason á Aski frá Holtsmúla 1 en þetta eru pör sem hafa verið að feikna sterkir í fimmgangi síðustu ár. Hans og Ölur voru Íslandsmeistarar í greininni 2024.

Það bíða margir eflaust spenntir eftir að sjá frumraun þeirra Jakobs Svavar Sigurðssonar og Safírs frá Laugardælum en Safír sló í gegn á Landsmóti 2022 þegar hann endaði annar í fimm vetra flokki stóðhesta, sýndur af Jakobi.

Hjarðartún, Aðalheiður og Ásmundur efst að stigum

Eins og staðan er fyrir fimmganginn er það lið Hjarðartúns sem leiðir, með 82 stig, en þau hafa sigrað liðaplattana hingað til. Knapar liðsins mæta vel hestaðir til leiks. Hans og Ölur eru eitt reynslumesta parið á ráslistanum og Jakob og Helga Una mæta með óreynda keppnishesta en báðir hátt dæmdir alhliða stóðhestar.

TopReiter/Sumarliðabæ eru í öðru sæti með 61,5 stig og Ganghestar/Margrétarhof í því þriðja með 56 stig.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Ásmundur Ernir Snorrason eru jöfn að stigum í einstaklingskeppninni, stigahæst, með 18 stig. Jakob Svavar er þar rétt á eftir með 14 stig, Jón Ársæll Bergmann með 12 stig og Arnhildur Helgadóttir með 11 stig.

Pantið borð á hlaðborðið og fáið frátekið sæti

Ráslistann fyrir fimmganginn er hægt að sjá hér fyrir neðan. Líkt og áður hefst keppni kl. 19:00 en húsið opnar 17:30 og er frítt inn í boði Eques. Hlaðborðið verður á sínum stað en þeir sem panta fyrir fram tryggja sér frátekið sæti í stúkunni, hægt er að panta HÉR. Sýnt verður beint frá mótinu á EiðfaxaTV og hefst útsending þar kl. 18:40.

Ráslisti fimmgangsins
  1. Jóhanna Margrét Snorradóttir Frontur frá Finnastöðum Hestvit / Árbakki
  2. Hans Þór Hilmarsson Ölur frá Reykjavöllum Hjarðartún
  3. Ásmundur Ernir Snorrason Askur frá Holtsmúla 1 Hrímnir / Hest.is
  4. Benjamín Sandur Ingólfsson Goði frá Oddgeirshólum Ib bílar
  5. Sigurður Vignir Matthíasson Hvirfill frá Mánaskál Ganghestar / Margrétarhof
  6. Árni Björn Pálsson Lasarus frá Ásmundarstöðum 3 Top Reiter / Sumarliðabær
  7. Jakob Svavar Sigurðsson Safír frá Laugardælum Hjarðartún
  8. Bergur Jónsson Salvar frá Hellubæ Ib bílar
  9. Védís Huld Sigurðardóttir Mánadís frá Litla-Dal Ganghestar / Margrétarhof
  10. Eyrún Ýr Pálsdóttir Gauti frá Vöðlum Top Reiter / Sumarliðabær
  11. Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi Hestvit / Árbakki
  12. Flosi Ólafsson Suðri frá Varmalandi Hrímnir / Hest.is
  13. Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk Hestvit / Árbakki
  14. Helga Una Björnsdóttir Karl frá Kráku Hjarðartún
  15. Teitur Árnason Aþena frá Þjóðólfshaga 1 Top Reiter / Sumarliðabær
  16. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Starri frá Syðsta-Ósi Ganghestar / Margrétarhof
  17. Brynja Kristinsdóttir Regína frá Skeiðháholti Hrímnir/Hest.is
  18. Þorgeir Ólafsson Blíða frá Bergi Uppboðssæti
  19. Jón Ársæll Bergmann Seytla frá Íbishól Ib bílar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar