Stefnir í jafna og spennandi keppni í slaktaumatölti!
Frá verðlaunaafhendingu í slaktaumatölti í fyrra. Mynd: Carolin Giese
Framundan er keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni að Ingólfshvoli og að sjálfsögðu í beinni útsendingu á EiðfaxaTV, Keppnin hefst klukkan 19:00.
Ráslistinn var kunngjörður í gær og því tímabært að velta því fyrir sér hvaða pör þykja sigurstranglegust að þessu sinni byggt á árangri fyrri ára.
Reynslumikil hross og knapar
Af þeim 6 hestum sem kepptu til úrslita í þessari grein á síðasta tímabili eru 4 þeirra á meðal þátttakenda, líklegt verður að teljast að þau verði í baráttunni um sigur. Það eru Ásmundur Ernir og og Hlökk frá Strandarhöfði sem unnu slaktaumatölt í Meistaradeild Líflands á síðasta ári og eiga auk þess hæstu einkunn ársins í fyrra en þau hlutu 9,07 í einkunn í forkeppni á Íslandsmótinu. Arnhildur Helgadóttir og Frosti frá Hjarðartúni sem hafa staðið sig afar vel í þessari grein og verið á meðal þeirra fremstu í heiminum, hlutu 8,10 í einkunn á Íslandsmóti. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum höfnuðu í fimma sæti í fyrra og eru í miklum gír sé tekið mið af keppni í fjórgangi sem fram fór fyrir tveimur vikum. Eyrún Ýr Pálsdóttir og Drangur frá Steinnesi sem urðu í sjötta sæti í úrslitum í fyrra og utandyra náði Teitur Árnason á honum mögnuðum árangri með 8,13 í forkeppni á íslandsmótinu.
Þá eru þessi pör sem hér á undan eru nefnd ekki þau einu sem státa af frábærum árangri í slaktaumatölti. Jakob Svavar Sigurðsson og Hrefna frá Fákshólum hafa oft átt magnaðar sýningar, urðu til að mynda í öðru sæti í þessari grein í Meistaradeild Líflands árið 2024 og urðu einnig Íslandsmeistarar hið sama ár. Þá sýndi Helga Una Björnsdóttir það á Björt frá Kráku í fjórgangnum að þar fer aðsópsmikil hryssa sem er allrar athygli verð og Helga Una oft á meðal þeirra fremstu í þessari grein, er ríkjandi Íslandsmeistari og veit hvað þarf til að sigra.
Þrátt fyrir að ofantöld pör hafi verið tekinn fram fyrir sviga sem þau líklegustu til að standa framarlega í ár er ekki þar með sagt að önnur pör geti ekki valdið usla. Hver einasti knapi og hestur í Meistaradeild Líflands státa af miklum gæðum og skyldi aldrei afskrifa. Þá er slaktaumatölt þannig grein að lítil mistök geta kostað mikið og því getur allt gerst.
Fylgstu með Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á EiðfaxaTV
Eins og áður hefst keppni stundvíslega kl. 19:00 í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. HorseDay býður frítt í stúkuna, þannig að áhorfendur geta tryggt sér sæti og upplifað keppnina í einstakri stemningu á staðnum. Fyrir þá sem vilja gera kvöldið enn betra verða ÁB veitingar með glæsilegt hlaðborð á staðnum og gestir sem panta fyrir fram fá frátekið sæti á besta stað í stúkunni. Pantanir fara fram HÉR. Húsið opnar klukkan 17:00
Stefnir í jafna og spennandi keppni í slaktaumatölti!
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum