Stórafmælisár Suðurlandsdeildarinnar

  • 18. febrúar 2026
  • Fréttir

Lið Vöðla/Snilldarverks vann liðakeppnina árið 2025 í Suðurlandsdeildinni. Ljósmynd: Facebooksíða Suðurlandsdeildar

„Hvetjum alla til að gera sér glaðan dag og mæta í Rangárhöllina á keppniskvöldin sem framundan eru“

“Það er mjög mikil tilhlökkun og mikill kraftur í öllum að hefja tímabilið,“ segir Hekla Katharína Kristinsdóttir, formaður stjórnar Suðurlandsdeildarinnar, en fyrsta mótið í deildinni fer fram þann 24. febrúar næstkomandi. Vífilfell býður áhorfendum frítt á það mót!

Um stór tímamót er að ræða því Suðurlandsdeildin fagnar nú sínu 10. starfsári. Deildin hefur fest sig rækilega í sessi sem ein skemmtilegasta mótaröð landsins.

Samvinna og sjálfboðaliðastarf

Að sögn Heklu er undirbúningurinn í fullum gangi og einkennist af samhug. „Það er mikið af fólki tilbúið að leggja á sig sjálfboðavinnu til þess að skila góðu verki fyrir Rangárhöllina og Hestamannafélagið Geysi, en deildin er samvinna þessara tveggja aðila og hefur verið frá upphafi.“
Hún segir gaman að sjá hversu mikill kraftur er enn til staðar til að halda úti öflugri deild í samkeppni við aðrar flottar deildir víðsvegar um landið.

Sérstaða í blönduðum liðum

Suðurlandsdeildin sker sig úr fyrir þá sérstöðu að bjóða upp á keppni þar sem atvinnumenn og áhugamenn mynda saman lið. Alls eru 11 staðfest lið í ár, sem þýðir að 66 knapar munu etja kappi í vetur.

„Ég get talað sem keppandi sem hefur verið í liði,“ segir Hekla um þetta fyrirkomulag. „Það getur myndast mikil og skemmtileg stemning þar sem atvinnumennirnir eru oft að aðstoða áhugamennina og öfugt. Liðsmenn hjálpast til við að stilla upp sem bestu sveitinni hverju sinni og ef tekst að skapa réttu stemninguna þá er það mjög hvetjandi fyrir hvern og einn knapa að vera í blönduðu liði.“

Aðaláherslan í Suðurlandsdeildinni er á liðakeppnina, þótt einstaklingsverðlaun séu veitt, en stigahæsta liðið stendur uppi sem sigurvegari í lokin.

Lagt á ráðin fyrir keppniskvöld. Ljósmynd: Facebooksíða Suðurlandsdeildar

Vonumst til að sjá sem flesta!

Keppnisfyrirkomulagið verður með hefðbundnu sniði í ár. Byrjað verður á kvöldi sem helgað er parafimi og slaktaumatölti. Parafimin er sérstök „einkennisgrein“ deildarinnar sem hefur þróast í gegnum árin. „Þetta hefur mælst mjög vel fyrir. Í upphafi voru tvö pör frá hverju liði en nú er eitt par frá hverju liði og svo slaktaumatöltið sama kvöld,“ útskýrir Hekla.

Í Suðurlandsdeildinni er keppt í Parafimi sem er skemmtileg og einstök grein. Ljósmynd: Facebooksíða Suðurlandsdeildar

Þótt Eiðfaxi muni sýna beint frá herlegheitunum leggur Hekla ríka áherslu á að fólk mæti á staðinn.

„Við ætlum að taka vel á móti fólki í höllinni. Það verða seldar á staðnum, notalegt í höllinni og því hvetjum við alla til þess að gera sér dagamun og mæta á staðinn. Nærsveitungar, fólk á öllum aldri, hafa alltaf verið duglegir að mæta og það gleður okkur mjög að sjá svo marga á pöllunum. Við vonum innilega að á því verði áframhald,“ segir Hekla Katharína að lokum.

Stjórn og dagskrá Suðurlandsdeildar 2026

Stjórn deildarinnar: Hekla Katharína Kristinsdóttir (formaður), Guðmundur F. Björgvinsson, Þorgerður Guðmundsdóttir, Viktor Sigurbjörnsson og Rebekka Rut Leifsdóttir.

Dagskrá Suðurlandsdeildar

• 24. febrúar: Slaktaumatölt og Parafimi
• 10. mars: Fjórgangur
• 24. mars: Fimmgangur
• 7. apríl: Tölt og skeið (gegnum höllina)

Hvert lið er skipað sex knöpum og senda liðin fjóra knapa til leiks á hverju kvöldi, að undanskildu lokakvöldinu þar sem tveir keppa í skeiði og fjórir í tölti.

www.eidfaxitv.is Sýnir beint frá öllum keppniskvöldum Suðurlandsdeildarinnar.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar