Eiðfaxi TV Stórglæsilegur afmælisleikur í samstarfi Ástundar og Eiðfaxa

  • 13. febrúar 2026
  • Fréttir
Þú gætir unnið hnakk frá Ástund að eigin vali!

Verslunin Ástund fagnar á þessu ári hálfrar aldar afmæli, en í 50 ár hefur fyrirtækið verið leiðandi í hönnun og sölu á reiðtygjum fyrir íslenska hestinn. Til að fagna þessum merka áfanga hafa Ástund og Eiðfaxi tekið höndum saman og blásið til afmælisleiks þar sem vinningurinn er ekki af lakara taginu.

Einn heppinn þátttakandi mun hljóta Ástund hnakk að eigin vali, en verðmæti vinningsins er um 800.000 kr. Ástundar hnakkarnir eru þekktir fyrir að veita knapanum góðan stuðning og nálægð við hestinn án þess að fórna þægindum.

Hvernig tekurðu þátt?

Það er einfalt að komast í pottinn, en til þess þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Fylgja Ástund á Facebook og Instagram.

Fylgja Eiðfaxa á Facebook og Instagram.

Vera ársáskrifandi að Eiðfaxa TV.

„Við vildum gera eitthvað virkilega stórt í tilefni afmælisins og hvað er betra en að gefa einn af okkar bestu hnökkum?“ segja forsvarsmenn Ástundar í samtali við Eiðfaxa.

Það er því til mikils að vinna fyrir alla hestamenn. Ef þú ert ekki þegar með ársáskrift að Eiðfaxa TV er kjörið að láta verða af því núna, njóta vandaðs efnis um íslenska hestinn og eiga um leið möguleika á þessum glæsilega afmælisvinningi.

Sjáðu nánar um leikinn í myndbandinu hér að neðan:

English version

Ástund Celebrates 50th Anniversary with a Massive Giveaway: Win a Saddle of Your Choice!

This year, the equestrian store Ástund celebrates its 50th anniversary. For 50 years, the company has been a leader in the design and sale of high-quality tack specifically for the Icelandic horse. To mark this major milestone, Ástund and Eiðfaxi have teamed up for an anniversary giveaway with a truly extraordinary prize.

One lucky winner will receive an Ástund saddle of their choice, valued at approximately 800,000 ISK. Ástund saddles are world-renowned for providing riders with excellent support and close contact with the horse, all without sacrificing comfort.

How to take part

Entering the giveaway is simple, but you must meet the following criteria to be eligible for the draw:

Follow Ástund on Facebook and Instagram.

Follow Eiðfaxi on Facebook and Instagram.

Have a annual subscription to Eiðfaxa TV.

„We wanted to do something truly big for our anniversary, and what could be better than giving away one of our finest saddles?“ said Ástund representatives in an interview with Eiðfaxi.

There is a lot at stake for horse enthusiasts! If you aren’t already a subscriber to Eiðfaxi TV, now is the perfect time to join. Enjoy premium content about the Icelandic horse while putting yourself in the running for this magnificent anniversary prize.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar