Suðurlandsdeild Eques 2026
Rasmus Møller Jensen eigandi Eques og Hekla Katharína Kristinsdóttir formaður stjórnar Suðurlandsdeildarinnar handsala samstarfið.
Suðurlandsdeildin og Eques hafa gert með sér samkomulag um að Suðurlandsdeildin mun bera nafn og merki Eques á komandi tímabili og verður því Suðurlandsdeild Eques. Aðstandendur deildarinnar eru virkilega ánægðir með samstarfið og hlakka til komandi tímabils.
Suðurlandsdeildin fagnar 10 ára afmæli og því sannarlega tímamót fyrir deildina!
Eques er danskt fyrirtæki sem framleiðir reiðtygi og fatnað, með aðsetur í Svenstrup í Norður-Jótlandi. Fyrirtækið var stofnað árið 2009 af Rasmus Møller Jensen, sem hefur víðtæka reynslu af þjálfun og keppni á íslenskum hestum. Sú reynsla endurspeglast í hönnun og þróun vara félagsins.
Eques sérhæfir sig einkum í búnaði fyrir íslenska hesta og knapa þeirra. Vörur Eques eru seldar víða um heim í fjölmörgum verslunum og fást í verslunum Líflands hér á landi.
Suðurlandsdeild Eques hefst næstkomandi þriðjudagskvöld (24. febrúar) og fer fram í Rangárhöllinni á Hellu. Keppni hefst kl. 18:30 og keppt verður í Parafimi og Slaktaumatölti. Það er Coca-cola sem býður áhorfendum í Rangárhöllina fyrsta keppniskvöldið.
Við hvetjum alla til að koma við snemma, veitingasalan verður opin í Rangárhöllinni og vel verður tekið á móti öllum!
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Guðlaug og Kolbrún Stella sigurvegarar dagsins