Tekið á móti umsóknum í Stofnverndarsjóð

  • 4. desember 2023
  • Tilkynning
 Bændasamtök Íslands hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem óskað er eftir umsóknum í Stofnverndarsjóðinn. Hér fyrir neðan er hægt að lesa tilkynninguna:

Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt  15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með  stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum  og reglugerð nr. 1123/2015 um sama efni. 

Verkefni sjóðsins eru að veita styrki til þróunar- og rannsóknaverkefna  í hrossarækt.

Verkefnin skulu stuðla að viðhaldi verðmætra eiginleika í  eða auka þekkingu á stofninum og útbreiðslu hans.

Fagráð í hrossarækt auglýsir eftir umsóknum ár hvert og tekur ákvörðun um styrkveitingar. 

Fagráð tekur ákvarðanir um styrkveitingar í desember 2023. Nánari  upplýsingar fást hjá Ráðgjafamiðstöð Landbúnaðarins (elsa@rml.is). Frestur  til að skila inn umsóknum er til 15. desember 2023. Umsóknareyðublað má  finna á www.bondi.is og prentuðum eintökum má skila á heimilisfang  Ráðgjafarmiðstöðvarinnar hér að neðan.

Berist til: 

Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 

Höfðabakka 9 – 4.hæð, 110 Reykjavík 

Eða elsa@rml.is Fagráð í hrossarækt.  

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar