Háskólinn á Hólum Þróaðu reiðmennskuna á Hólum

  • 21. febrúar 2025
  • Tilkynning
2. árs nemendur Háskólans á Hólum bjóða á reiðnámskeið.

Kennslan fer fram á Hólum á skólhestum Hólaskóla og því er þetta frábært tækifæri til að fá kennslu á mikið þjálfuðum hestum.

Notast verður við knapamerki 3 í kennslunni því er æskilegt að knapar séu með reynslu í samræmi við það.

Námskeiðið samanstendur af 4 verklegum tímum og 2 bóklegum tímum. Verklegu tímarnir eru 50 min 4, 6, 10 og 11. mars milli 17:00 og 21:00. Bóklegu tímarnir eru 40 min. 4 og 6. mars.

Nemendur koma með eigin hnakk, undirdýnu og hjálm. Skólinn skaffar beisli, taum og múl.

Einungis 15 laus pláss en síðasti skráningardagur er á morgun, 22. febrúar. Skráning fer fram HÉR

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar