Búið að opna fyrir skráningu í uppboðssæti í fjórgang
Keppt verður í fjórgangi fimmtudaginn 22. janúar næstkomandi. Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 20. janúar kl. 12:00. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.
„Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR,“ segir í tilkynningu frá stjórn Meistaradeildar Líflands.
Búið að opna fyrir skráningu í uppboðssæti í fjórgang
Til minningar um Ragnheiði Hrund
Nýr landsliðshópur kynntur