Uppboðssæti: Tölt T1 og flugskeið
Stjórn Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum hefur opnað fyrir skráningu í uppboðssæti í Tölti T1 og flugskeiði í gegnum höllina. Keppt verður föstudaginn 27. mars næstkomandi.
Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 25. mars kl. 23:59. Þeir sem hafa hug á að næla sér í sæti og keppa meðal þeirra bestu senda tilboð á info@meistaradeild.is.
Lög deildarinnar segja til um að einn einstakur knapi geti keypt sér keppnisrétt í einstaka grein. Ef fleiri en einn vilja taka þátt mun hæsta boð gilda. Ef hæstu boð eru jöfn munu allir knaparnir hljóta keppnisrétt. Hægt er að nálgast reglur deildarinnar HÉR.
Uppboðssæti: Tölt T1 og flugskeið
Flink alhliðahross í Suðurlandsdeild Eques