„Varasamt að rækta einungis eftir tölum á blaði“
Jón Elvar Hjörleifsson ræktar hross kennd við Hrafnagil. Hann býr á jörðinni ásamt konu sinni Berglindi Kristinsdóttur en þau eiga tvær aðrar jarðir, Ytra-Laugaland og Brúnir í Eyjafjarðarsveit og eru þessar þrjár samtals um 1.000 ha.
“Við höfum verið að fikta við ræktun í 20 ár ca. en af einhverri alvöru síðustu 10 ár. Ræktunarhryssurnar okkar eru flestar frá Hrafnagili, Hástíg (8,07), Klettagjá (7,89), Fífa (8,11), Alvara, Freyja (7,69) og Hrymdís eru allar frá okkur. Aðrar hryssur eru þær Sara frá Víðinesi 2 (8,29) en hún er undan Sóleyju frá Hrafnagili, Keila frá Bjarnastaðahlíð (8,07), Gígja frá Búlandi (8,09), Guðbjört frá Úlfsstöðum (8,16) og Hrifla frá Kollaleiru (7,97),” segir hann. Þau hafa verið að fá 10 – 12 folöld á ári og í sumar héldu þau hryssunum sínum undir Sindra frá Hjarðartúni, Hákon frá Ragnheiðarstöðum, Sjóð frá Kirkjubæ, Hraunar frá Hrafnagili, Rafnar frá Hrafnagili, Hulinn frá Breiðsstöðum og Skagann frá Skipaskaga.
Við erum með fimm hross í þjálfun frá okkur, þrjú eru hjá Hans Kjerúlf á Reyðarfirði og tveir stóðhestar eru fyrir sunnan. Annar hjá þeim Guðmundi Björgvins og Evu Dyröy á Rauðalæk og Ásmundi Erni og Stellu í Standarhöfuði,” segir Jón Elvar en fyrir utan þessi hross eiga þau um 40 hross á útigangi. “Þetta eru spennandi folar sem eru á járnum hjá okkur. Rafnar sem er hjá Gumma og Evu hlaut 7,98 í aðaleinkunn í sumar, 4. vetra. Hann er undan Söru frá Víðinesi og Brag frá Ytri-Hól. Ási og Stella eru líka með spennandi fola frá mér sem er sammæðra Rafnari undan Loka frá Selfossi. Hann er fjögurra vetra í vor. Síðan eru Fenrisbörn á fjórða vetur í tamningu sem lofa góðu í bland við eldri hross sem eru í þjálfun hjá Hans Kjerúlf,” bætir hann við. Jón heillaðist af Auði frá Lundum þegar hann sá hann sýndann á Landsmóti 2006 og á m.a. mjög efnilega hryssu undan honum og Söru frá Víðinesi. “Hún verður eitthvað. Auður var óhemju fasmikill hestur og með mikil flottheit, það sama má segja um Fenri frá Feti og Loka frá Selfossi,” segir hann en hann hefur notað þá Fenri og Loka mikið.
Aðspurður hver sé hápunktur ársins hjá þeim svarar hann fljótt; “þegar Sara frá Víðinesi kom með hryssu undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum í maí. Stór og gullfalleg, eins og hún gefur nú oftast. Eins er alltaf gaman að fylgjast með þeim Flugu frá Hrafnagili og Helgu Unu Björnsdóttir í brautinni,” og bætir við að ekki sé hægt að sleppa að nefna þegar Jón á Skipaskaga kom í heimsókn og sá Hástíg frá Hrafnagili hlaupa um að hann hafði aldrei séð svona hágenga hryssu.
Þau Jón Elvar og Berglind fóru ekki á Landsmótið í sumar en fylgdust með mótinu á netinu og sáu Sindra frá Hjarðartúni og Ljósvaka frá Valstrýtu slá þar í gegn. Jón Elvar fylgdist vel með Sindra á mótinu en þeir félagar í Stallion North vorum búnir að panta Sindra í hólf í sumar en hesturinn kom síðan ekki sökum ágangs.
Aðspurður hvernig honum lýst á þróun kynbótastarfsins er Jón Elvar hugsi yfir þróun mála. “Mér lýst ekkert orðið á þetta kynbótakerfi s.l. tvö ár. Það er bara allt í einu byrjað að sturta hrossum í dómi og eins í hina áttina. Kannski hefur maður bara ekkert vit á þessu eða á ekki nógu góð hross, ef ekki bæði bara. Ég er allavegana búin að taka þá ákvörðun að mæta ekki hjá ákveðnum dómurum með hross í framtíðinni. Oftar en ekki fáum við geðfúla dómara senda hingað norður og fáum því aldrei svona “MEGAVIKU” eins og var á Hellu í sumar,” segir Jón Elvar og bætir við að lokum að varasamt sé að rækta einungis eftir tölum á blaði. “Mín skoðun er sú að þegar brjóstvitið hverfur í BLUPræktun að þá er ekki von á góðu.”

Hrafnagil í Eyjafirði
Stefnir í hörku keppni í fimmgangnum
Fjóla og Spira sigra í fimmgangi Áhugamannadeildar Norðurlands