Veffræðsla með Dr. Susanne Braun

  • 8. janúar 2022
  • Fréttir
"Veldu rétt fyrir hestinn þinn"

Dr. Susanne Braun opnar Heilsudaga hestsins í Líflandi með áhugaverðu veffræðsluerindi undir yfirskriftinni “Veldu rétt fyrir hestinn þinn”.  Þar mun hún velta upp áskorunum sem upp geta komið í hestafóðrun, kvillum sem hrjá hestana okkar og hvaða fóður- og bætiefnavörur geta gagnast við að tækla þessar áskoranir.

Veffræðsluerindið verður haldið fimmtudaginn 13. janúar kl. 17-19

Susanne Braun er fagdýralæknir hesta og kírópraktor og íslenskum hestamönnum að góðu kunn. Hún mun miðla af víðtækri þekkingu í máli og myndum auk þess sem opið verður fyrir spurningar sem svarað verður milli efniskafla í erindi hennar.

Veffræðsluerindið er ókeypis og opið öllum en nauðsynlegt er að skrá sig en skráning fer fram HÉR

Þrír heppnir gestir hreppa góðan gjafapakka með hestafóðri og bætiefnum!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar