Landsmót 2026 Vel sóttur kynningarfundur um Landsmót

  • 4. október 2025
  • Fréttir

Á heimasíðu Landsmóts hestamanna er nýleg frétt sem segir frá vel sóttum kynningarfundi sem Hestamanafélagið Skagfirðingur héld í félagsheimili sínu, Tjarnabæ, nú í lok september.

Á fundinum fór Áskell Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri mótsins, yfir helstu verkefni sem snúa að undirbúningi auk þess að segja frá þeim framkvæmdum á mótssvæðinu sem farið hafa fram í sumar. Áskell Heiðar lagði áherslu á að mikil samstaða væri í héraðinu í aðdraganda mótsins og að samstarf hestamannafélagsins, Háskólans á Hólum, sveitarfélagsins og atvinnulífs í héraði væri mjög gott. Öll sem að mótinu standa eru staðráðin í að búa til frábæran viðburð fyrir gesti og keppendur með velferð hesta að leiðarljósi.

Líflegar umræður sköpuðust á fundinum og meðal þess sem var rætt um voru gistimál.  Íbúar Skagafjarðar eru hvattir til að leigja mótsgestum hús, íbúðir, herbergi, hjólhýsi eða hvaða önnur hýsi sem þeir eiga, en til þess er nóg að senda tölvupóst á gisting@landsmot.is og fá þar hjálp við að finna leigjendur, eftirspurnin er mikil.

Þá er miðasala á Landsmót í fullum gangi á landsmot.is og rétt að vekja athygli á forsölutilboði sem er í gildi nú til áramóta, en miði á Landsmót er upplögð jólagjöf fyrir hestafólk þetta árið!

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar