Meistaradeild KS í hestaíþróttum Vera vann fjórganginn

  • 11. febrúar 2026
  • Fréttir

Vera Schneiderchen og Feykir frá Selfossi unnu fjórganginn í Meistaradeild KS í hestaíþróttum Myndir: Freydís Bergsdóttir

Niðurstöður úr fjórgangskeppni Meistaradeildar KS í hestaíþróttum

Meistaradeild KS í hestaíþróttum fer vel af stað en fyrsta keppni deildarinnar fór fram í kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki.

Vera Schneiderchen stóð uppi sem sigurvegari kvöldsins á Feyki frá Selfossi en þau hlutu 7,27 í einkunn. Í öðru sæti voru þau jöfn Þórarinn Eymundsson á Kolgrími frá Breiðholti, Gbr. og Herdís Björg Jóhannsdóttir á Sverði frá Völlum með 7,27 í einkunn.

Það var lið Hrímnis/Hestkletts sem var efst að stigum í liðakeppninni en keppendur fyrir liðið voru þau Vera, Þórarinn og Kristján Árni Birgisson.

Næst verður keppt í Meistaradeild KS miðvikudaginn 25. febrúar í slaktaumatölti. 

A-ÚRSLIT
1.Vera Schneiderchen & Feykir frá Selfossi – 7,27
2.-3. Þórarinn Eymundsson & Kolgrímur frá Breiðholti, Gbr – 7,20
2.-3. Herdís Björg Jóhannsdóttir & Svörður frá Vöðlum – 7,20
4. Freyja Amble Gísladóttir & Grandi frá Syðri-Gegnishólum 7,10
5. Kristófer Darri Sigurðsosn & Ósk frá Narfastöðum 6,97

B-ÚRSLIT
6. Erlingur Ingvarsson & Dimmalimm frá Hrísaskógum – 7,00
7. Kristján Árni Birgisson & Stúdent frá Ásmúla – 6,93
8. Þórey Þula Helgadóttir & Hrafna frá Hvammi 1 – 6,83
9. Guðmar Freyr Magnússon & Snerpa frá Hólmum – 6,73
10. Björgvin Helgason & Kóngur frá Gunnarsstöðum – 6,53

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar