1. deildin í hestaíþróttum „Verð rekinn úr liðinu ef ég mæti ekki“

  • 13. mars 2026
  • Sjónvarp Fréttir
Viðtal við Pál Braga Hólmarsson, sigurvegara slaktaumatöltsins í 1. deild Hringdu

Þetta var í fyrsta sinn Páll Bragi keppti í 1. deildinni í vetur og ekki amaleg byrjun hjá honum. Hann mætti með stóðhest sinn Vísi frá Kagðarhóli en þeir hafa undanfarið verið á meðal allra bestu tölkeppnispara landsins og sýna fram á fjölhæfni sýna með því að ná slíkum árangri í slaktaumatölti.

Yfirburðir Páls Braga og Vísis voru þónokkrir. Þeir leiddu að lokinni forkeppni með einkunnina 7,50 og héldu forystunni nokkuð örugglega í A-úrslitum og stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 7,67.

Viðtal við Pál Braga er hér í spilaranum fyrir neðan en HÉR er hægt að sjá niðurstöður frá slaktaumatöltinu.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar