Viðar, Kristófer, Larissa og Kolbrún sigurvegarar í fimmgangnum

  • 22. maí 2022
  • Fréttir
A úrslitum í fimmgangi lokið á WR íþróttamóti Sleipnis

Fimmgangsúrslitum er lokið á WR íþróttamóti Sleipnis.

Viðar Ingólfsson vann meistaraflokkinn á Vigra frá Bæ með 7,21 í einkunn. Ungmennaflokkinn vann Kristófer Darri Sigurðsson á Ás frá Kirkjubæ með 6,74 í einkunn.

1.flokk vann Larissa Silja Werner á Fálka frá Kjarri en þau hlutu 6,69 í einkunn. Kolbrún Sif Sindradóttir vann unglingaflokkinn á Styrk frá Skagaströnd en þau hlutu 6,60 í einkunn.

Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr a úrslitum í fimmgangi

A úrslit – Fimmgangur F1 – Meistaraflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Viðar Ingólfsson Vigri frá Bæ 7,21
2 Þorgeir Ólafsson Íssól frá Hurðarbaki 6,86
3 Atli Guðmundsson Júní frá Brúnum 6,69
4 Þórarinn Ragnarsson Ronja frá Vesturkoti 6,55
5-6 Elin Holst Spurning frá SyðriGegnishólum 6,50
5-6 Haukur Baldvinsson Sölvi frá Stuðlum 6,50

A úrslit – Fimmgangur F1 – Ungmennaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Kristófer Darri Sigurðsson Ás frá Kirkjubæ 6,74
2-3 Glódís Rún Sigurðardóttir Kolfinna frá Auðsstöðum 6,67
2-3 Sigurður Baldur Ríkharðsson Myrkvi frá Traðarlandi 6,67
4 Rósa Kristín Jóhannesdóttir Greipur frá Haukadal 2 6,55
5 Hulda María Sveinbjörnsdóttir Björk frá Barkarstöðum 6,48
6 Unnsteinn Reynisson Hrappur frá Breiðholti í Flóa 6,17

A úrslit – Fimmgangur F2 – 1. flokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Larissa Silja Werner Fálki frá Kjarri 6,69
2 Vilborg Smáradóttir Sónata frá Efri-Þverá 6,62
3-4 Sara Pesenacker Flygill frá Þúfu í Landeyjum 6,43
3-4 Ásdís Ósk Elvarsdóttir Skúmur frá Skör 6,43
5 Sigríkur Jónsson Fjöður frá SyðriÚlfsstöðum 6,31
6 Halldóra Anna Ómarsdóttir Glóblesi frá Borgareyrum 6,14

A úrslit – Fimmgangur F2 – Unglingaflokkur
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Kolbrún Sif Sindradóttir Styrkur frá Skagaströnd 6,60
2 Glódís Líf Gunnarsdóttir Hallsteinn frá Þjóðólfshaga 1 6,45
3 Matthías Sigurðsson Frami frá Efri-Þverá 6,43
4 Herdís Björg Jóhannsdóttir Snædís frá Forsæti II 6,07
5 Helena Rán Gunnarsdóttir Gyðja frá Læk 5,81
6 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 5,14

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar