Viking Masters Viking Masters mótaröðin í fullum gangi

  • 6. febrúar 2026
  • Fréttir
Allt í beinni á Eyja.tv

Viking Masters mótaröðin í Þýskalandi er komin á fullt skrið og nú styttist óðfluga í næsta stórviðburð, því næstu helgi, 7. og 8. febrúar, verður flautað til leiks í Zweibrücken í vesturhluta Þýskalands.

Mótaröðin, sem nú er haldin í þriðja sinn, hefur fest sig í sessi sem ein allra skemmtilegasta mótaröðin í Evrópu þar sem heimsmeistarar og áhugafólk keppa á sama mótinnu.

Ekki missa af neinu – Beint streymi á Eyja.tv

Fyrir þá sem vilja njóta íslenska hestsins í hæsta gæðaflokki heiman frá stofu, þá er um að gera að stilla inn á www.eyja.tv. Þar verður sýnt beint frá mótinu alla helgina.

Í Zweibrücken má búast við mikilli spennu enda er von á fjölmörgum landsliðsknöpunum og fyrrum heimsmeisturum frá Þýskalandi, Sviss, Frakklandi og Austurríki.

Fram undan er mikið fjör. Mótið um helgina er aðeins byrjunin á mikilli veislu, því mótin verða nú haldin hverja helgi í febrúar:

7.–8. febrúar: Zweibrücken (Vestur-Þýskaland) – Næsta mót!

14.–15. febrúar: Schechen (Bæjaraland)

21.–22. febrúar: Münster (Mið-Þýskaland)

 

Viking Masters leggur metnað sinn í að bjóða upp á glæsilega umgjörð þar sem allt frá byrjendatölti upp í meistaraflokk í fimmgangi fær að njóta sín.

Hér að neðan má sjá myndbönd frá fyrsta mótinu í Lamspringe til að hita upp fyrir komandi helgi:

Allar nánari upplýsingar um ráslista og úrslit má finna á www.vikingmasters.net.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar