„Von á spennandi keppni og fallegum sýningum“
Stigahæsta lið í fjórgangi í fyrra var lið Ingólfshvols.
Keppnistímabilið í 1.deild Hringdu í hestaíþróttum hefst föstudagskvöldið 13.febrúar með keppni í fjórgangi. Mótið fer fram í reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði og hefst keppni klukkan 19:00. Verslunin Ástund býður öllum áhorfendum frítt í höllina og mótið verður sýnt í beinni á EiðfaxaTV.
Dregið var í rásröð í gær hér í beinni útsendingu á vef Eiðfaxa. Eins og áhugafólk um hestaíþróttir fékk að kynnast í fyrra að þá eru knapar í þessari deild engir aukvissar og mæta vel undirbúnir á góðum hestum. Sé tekið mið af hestakosti þessa ár má ekki vænta þess að þar verði breyting á.
Úrslitahestar frá því í fyrra og nýr spennandi hestakostur
Á meðal þeirra sem finna má á ráslistanum er sá hestur sem vann þessa grein í fyrra, Flaumur frá Fákshólum, sem þá líkt og vanalega var setinn af Guðmundu Ellen Sigurðardóttur. Nú mætir á honum Ólöf Rún Guðmundsdóttir og mun hún án vafa gera sitt besta til þess að endurtaka leik Guðmundar frá því í fyrra en einkunn þeirra í úrslitum var 7,67. Þórdís Inga Pálsdóttir og Móses frá Flugumýri II vöktu verðskuldaða athygli í fyrra og urðu í 2.sæti í þessari grein með einkunnnina 7,53, eina leiðin fyrir hana til að bæta þann árangur er að sigra keppinauta sína og það ætlar hún sér án vafa. Eitt par til viðbótar, sem var í úrslitum í fyrra, er á ráslista það er Vilborg Smáradóttir á Sigri frá Hólabaki. Margreynt par sem hlaut 6,93 í úrslitum fjórgangs í 1.deildinni og síðasta ári og varð í 5-6 sæti.
En líkt og alþjóð veit að þá er ný keppni á morgun og hvað knapar eða hestar hafa áður gert á keppnisbrautinni á ekki að skipta máli. Á meðal keppenda eru m.a. Katla Sif Snorradóttir á Sæmari frá Stafholti en þau hafa átt góðu gengi að fagna og unnu þessa grein í Meistaradeild KS á síðasta ári, vita því hvað þarf til að vinna sem mun nýtast þeim vel. Ólafur Þórisson á Fáfni frá Miðkoti hefur verið að gera góða hluti í fjórgangi og er það par í þessari keppni sem hæstri einkunn náði í fyrra í fjórgangi utanhúss og standa ofarlega á stöðulista ársins 2025. Birna Olivia Ödqvist mætir á Hrafni frá Oddstöðum I, þau hafa ekki keppt saman áður en Jakob Svavar Sigurðsson mætti með hann í hans fyrstu fjórgangskeppni í fyrra þar sem þeir hlutu í einkunn 7,17 og standa vel á stöðulista síðasta árs.
Þessi samantekt hér að ofan er einungis spádómur um þá hesta og knapa sem líklegastir eru til þess að standa ofarlega á morgun byggt á fyrri árangri. Það er þó von greinarhöfundar að óvæntir hlutir gerist og miðað við þá góðu knapa sem keppa í 1.deild Hringdu mega áhorfendur eiga von á spennandi keppni og fallegum sýningum.
Þá er vert að minnast þess að í 1.deild Hringdu skiptir hvert stig miklu máli bæði í einstaklings- og liðakeppni. Fjórgangur er einungis fyrsta keppniskvöldið af mörgum og er því markmið hvers og eins knapa að hámarka árangur sinni í hverri grein til að næla í mikilvæg stig í heildarkeppninni.
Nældu þér í áskrift og fylgstu með 1.deild Hringdu í hestaíþróttum á EiðfaxaTV
Ráslisti
Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir
1 Snorri Dal Sæljómi frá Stafholti Sæþór IS2010125727 frá Stafholti Hekla IS1998257541 frá Halldórsstöðum
2 Sigurður Baldur Ríkharðsson Garri frá Bessastöðum Hreyfill IS2008187983 frá Vorsabæ II Glæða IS2007255571 frá Bessastöðum
3 Hermann Arason Runni frá Vindási Spuni IS2006187114 frá Vesturkoti Viðja IS1999284955 frá Vindási
4 Reynir Örn Pálmason Goði frá Garðabæ Straumur IS2008186917 frá Feti Hnota IS1995225400 frá Garðabæ
5 Hannes Sigurjónsson Dimmir frá Varmalæk Dofri IS2012157141 frá Sauðárkróki Nótt IS2006257806 frá Varmalæk
6 Lea Schell Húni frá Efra-Hvoli Prinsinn IS2008184860 frá Efra-Hvoli Húna IS2006284861 frá Efra-Hvoli
7 Helgi Þór Guðjónsson Salka frá Kviku Vákur IS2010125289 frá Vatnsenda Sóta IS2008287697 frá Kolsholti 2
8 Fredrica Fagerlund Sjarmur frá Fagralundi Frami IS2007176176 frá Ketilsstöðum Sóldögg IS2004255052 frá Efri-Fitjum
9 Vilborg Smáradóttir Sigur frá Stóra-Vatnsskarði Álfur IS2002187662 frá Selfossi Lukka IS2001257651 frá Stóra-Vatnsskarði
10 Bjarney Jóna Unnsteinsd. Hrafn frá Ytri-Skógum Skýr IS2007184162 frá Skálakoti Gnótt IS2005284012 frá Ytri-Skógum
11 Anna Björk Ólafsdóttir Atlas frá Ragnheiðarstöðum Boði IS2012125421 frá Breiðholti, Gbr. Helga-Ósk IS2007282570 frá Ragnheiðarstöðum
12 Ólafur Þórisson Fáfnir frá Miðkoti Ljósvaki IS2010180716 frá Valstrýtu Gjöf IS1999284623 frá Miðkoti
13 Haukur Tryggvason Hnáta frá Auðsholtshjáleigu Sveinn-Hervar IS1994184553 frá Þúfu í Landeyjum Glefsa IS2005287019 frá Auðsholtshjáleigu
14 Ólöf Rún Guðmundsdóttir Flaumur frá Fákshólum Hreyfill IS2008187983 frá Vorsabæ II Flauta IS2002286407 frá Hala
15 Þorvaldur Logi Einarsson Vígur frá Einiholti Óskar IS2013101473 frá Þingbrekku Geisladís IS2009288404 frá Einiholti
16 Anna S. Valdemarsdóttir Litríkur frá Miðengi Múli IS2010137338 frá Bergi Hæra IS2000288710 frá Miðengi
17 Þórdís Inga Pálsdóttir Móses frá Flugumýri II Hringur IS2009167169 frá Gunnarsstöðum I Ófeig IS2000258620 frá Flugumýri II
18 Thelma Dögg Tómasdóttir Efi frá Kerhóli Marel IS2012101481 frá Aralind Synd IS2007265300 frá Skriðu
19 Birna Olivia Ödqvist Hrafn frá Oddsstöðum I Viti IS2007156418 frá Kagaðarhóli Elding IS2008235717 frá Oddsstöðum I
20 Sunna Sigríður Guðmundsdóttir Jökull frá Þingbrekku Hrímnir IS2005165247 frá Ósi Ör IS1999225132 frá Seljabrekku
21 Katla Sif Snorradóttir Sæmar frá Stafholti Sæþór IS2010125727 frá Stafholti Mirra IS2007225726 frá Stafholti
22 Hlynur Guðmundsson Neisti frá Ytri-Skógum Konsert IS2010156107 frá Hofi Gefjun IS2007284011 frá Ytri-Skógum
23 Friðdóra Friðriksdóttir Hallsteinn frá Hólum Gaumur IS2001187053 frá Auðsholtshjáleigu Hafdís IS2005287262 frá Hólum
24 Eysteinn Tjörvi K. Kristinsson Fortíð frá Ketilsstöðum Álfaklettur IS2013187660 frá Syðri-Gegnishólum Framtíð IS2001276174 frá Ketilsstöðum
„Von á spennandi keppni og fallegum sýningum“
Ráslisti fyrir fjórgang Meistaradeildarinnar
Nýtt spjaldakerfi og hertar reglur í skeiðgreinum
Tækifæri til að láta röddu sína heyrast
Vera vann fjórganginn