Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Yfirburðarsigur hjá Jóni og Díönu

  • 5. febrúar 2026
  • Fréttir
Niðurstöður úr slaktaumatöltinu í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum

Öðru keppniskvöldi í Meistaradeild Líflands. Mikil spenna var í A úrslitunum og hart barist. Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði áttu frábæra sýningu á frjálsri ferð og tryggðu sér þó nokkra forustu.

Á hægu tölti söxuðu þau Jón Ársæll og Díana frá Bakkakoti á forskot Ásmundar og á slökum taumi áttu þau bestu sýningarnar ásamt þeim Arnhildi Helgadóttur og Frosta frá Hjarðartúni. Sigur í höfn hjá Jóni Ársæli me 8,71 í einkunn, Arnhildur í öðru sæti með 8,38 og Ásmundur í því þriðja með 8,25.

Lið Hjarðartúns endurtók leikinn og vann liðaplattann en eins og í fjórgangnum voru allir knapar í úrslitum. Arnhildur í öðru sæti, Jakob Svavar Sigurðsson á Hrefnu frá Fákshólu í fjórða sæti og Helga Una Björnsdóttir á Björt frá Kráku í því sjöunda.

Næsta mót verður þann 20. febrúar en þá verður keppt í fimmgangi.

Niðurstöður Tölt T2

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti 8,71
2 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni 8,38
3 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 8,25
4 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum 7,83
5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 7,67

B úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,67
7 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 7,62
8 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 7,58
9 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 7,29
10 Sigurður Vignir Matthíasson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,25

Forkeppni
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Jón Ársæll Bergmann Díana frá Bakkakoti 8,40
2 Arnhildur Helgadóttir Frosti frá Hjarðartúni 8,10
3 Jakob Svavar Sigurðsson Hrefna frá Fákshólum 8,03
4 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Flóvent frá Breiðstöðum 8,00
5 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði 7,97
6 Helga Una Björnsdóttir Björt frá Kráku 7,53
7-8 Eyrún Ýr Pálsdóttir Drangur frá Steinnesi 7,50
7-8 Hanne Oustad Smidesang Tónn frá Hjarðartúni 7,50
9 Glódís Rún Sigurðardóttir Ottesen frá Ljósafossi 7,47
10 Sigurður Vignir Matthíasson Víkingur frá Hlemmiskeiði 2 7,47
11 Teitur Árnason Hrafnar frá Hvoli 7,43
12 Védís Huld Sigurðardóttir Ötull frá Narfastöðum 7,37
13 Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Flaumur frá Fákshólum 7,30
14 Gústaf Ásgeir Hinriksson Gýmir frá Skúfslæk 7,20
15 Benjamín Sandur Ingólfsson Goði frá Oddgeirshólum 4 7,03
16 Viðar Ingólfsson Bylur frá Kvíarhóli 6,83
17 Þorgeir Ólafsson Gígjar frá Bakkakoti 6,80
18 Brynja Kristinsdóttir Snorri frá Litla-Dal 6,60
19 Hinrik Bragason Hugur frá Hólabaki 6,20

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar