Yfirliti stóðhesta lokið

Dagný og Þorvaldur í Innri-Skeljabrekku taka við Blesabikarnum fyrir hest sinn Hervar
Yfirlit stóðhesta á Fjórðungsmóti Vesturlands er nú lokið.
Hervar frá Innri-Skeljabrekku er sá stóðhestur sem hæstan sköpulagsdóm hafði hlotið af þeim sem sýndir voru á Fjórðungsmóti og hlýtur því Blesabikarinn sem gefinn er til minningar um Marinó Jakobsson á Skáney.
Nökkvi frá Hrísakoti stóð efstur 7.vetra og eldri stóðhesta en hann er einnig hæst dæmda hross fjórðungsmótsins með 8,52 í aðaleinkunn. Sýnandi á honum var Jakob Svavar Sigurðsson.

Í flokki sex vetra stóðhesta stendur efstur Atli frá Efri-Fitjum með 8,50 í aðaleikunn sýndur af Tryggva Björnssyni.

Skyggnir frá Skipaskaga er hæst dæmdur af fimm vetra gömlum stóðhestum með 8,28 í aðaleinkunn en sýnandi hans var Daníel Jónsson.

Í flokki fjögurra vetra stóðhesta er það Draupnir frá Holtsmúla sem efstur stóð með 8,13 í aðaleinkun sýndur af Tryggva Björnssyni.

Flokkur | Hross | Sýnandi | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn |
7 vetra hestar og eldri | Nökkvi frá Hrísakoti | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,39 | 8,58 | 8,52 |
7 vetra hestar og eldri | Álmur frá Reykjavöllum | Þórarinn Eymundsson | 8,56 | 8,41 | 8,46 |
7 vetra hestar og eldri | Huginn frá Bergi | Viðar Ingólfsson | 8,45 | 8,42 | 8,43 |
7 vetra hestar og eldri | Rosi frá Berglandi I | Magnús Bragi Magnússon | 8,29 | 8,38 | 8,35 |
7 vetra hestar og eldri | Sigursteinn frá Íbishóli | Magnús Bragi Magnússon | 8,11 | 7,98 | 8,03 |
6 vetra hestar | Atli frá Efri-Fitjum | Tryggvi Björnsson | 8,56 | 8,47 | 8,50 |
6 vetra hestar | Vigri frá Bæ | Viðar Ingólfsson | 8,58 | 8,32 | 8,41 |
6 vetra hestar | Kunningi frá Hofi | Viðar Ingólfsson | 8,35 | 8,38 | 8,37 |
6 vetra hestar | Hervar frá Innri-Skeljabrekku | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,74 | 8,08 | 8,32 |
6 vetra hestar | Seiður frá Hólum | Konráð Valur Sveinsson | 8,29 | 8,27 | 8,28 |
6 vetra hestar | Ljómi frá Narfastöðum | Teitur Árnason | 8,41 | 8,17 | 8,25 |
6 vetra hestar | Tjörvi frá Bæ 2 | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,46 | 8,05 | 8,20 |
5 vetra hestar | Skyggnir frá Skipaskaga | Daníel Jónsson | 8,66 | 8,08 | 8,28 |
5 vetra hestar | Blæsir frá Hægindi | Agnar Þór Magnússon | 8,45 | 7,87 | 8,07 |
5 vetra hestar | Salómon frá Efra-Núpi | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | 7,79 | 8,22 | 8,07 |
5 vetra hestar | Framherji frá Skipaskaga | Daníel Jónsson | 8,46 | 7,73 | 7,99 |
5 vetra hestar | Söngur frá Stóra-Ási | Gísli Gíslason | 8,72 | 7,53 | 7,95 |
4 vetra hestar | Draupnir frá Holtsmúla 1 | Tryggvi Björnsson | 8,44 | 7,96 | 8,13 |
4 vetra hestar | Ljósvaki frá Steinnesi | Agnar Þór Magnússon | 8,18 | 8,08 | 8,11 |
4 vetra hestar | Hátindur frá Álfhólum | Flosi Ólafsson | 8,21 | 7,82 | 7,96 |
4 vetra hestar | Abel frá Skáney | Flosi Ólafsson | 8,30 | 7,62 | 7,86 |
4 vetra hestar | Sesar frá Naustum | Agnar Þór Magnússon | 8,00 | 7,25 | 7,51 |