U21 árs landslið Íslands í hestaíþróttum
Landssamband hestamannafélaga (LH) kynnti U21 landsliðshóp LH í Líflandi í dag, 28. febrúar. Þetta er annað skrefið sem LH tekur í breyttum áherslum í afreksmálum en nýlega var kynntur landsliðshópur LH í flokki fullorðinna.