Síðasti séns að tryggja sér miða á Uppskeruhátíð hestamanna

Nú styttist óðum í Uppskeruhátíð hestamanna sem fer fram næstkomandi laugardag, þann 21. nóvember, í Gamla bíói. Hátíðin hefur tekist með eindæmum vel síðustu ár og er von á frábæru kvöldi þar sem knapar verða heiðraðir fyrir glæsilegan árangur á árinu – enda hvergi jafn gaman og þar sem hestafólk kemur saman.

Athugið að miðasölu lýkur á miðnætti annað kvöld, miðvikudaginn 18. nóvember.

Glæsileg dagskrá og veislumatur

Skemmtidagskráin er heldur betur glæsileg í ár. Okkar helsti brekkusöngvari frá Landsmótinu í Reykjavík, Emmsjé Gauti, mætir og heldur uppi stuðinu, ásamt því að skagfirska hljómsveitin Danssveit Dósa leikur fyrir dansi. Veislustjóri kvöldsins verður einn okkar fremsti, Hjörvar Ágústsson, en hann kann manna best að halda uppi gleðinni.

Meistarakokkarnir Hinrik og Viktor Örn hjá LÚX veitingum sjá um að töfra fram veislumat kvöldsins:

Aðalréttur: Grilluð 14 daga hangin nautalund með jarðskokkum, villisveppum, kartöflu-terrine og bearnaise-sósu.

Eftirréttur: Heslihnetu „Lion bar“ með hindberjum, saltkaramellu og hvítsúkkulaðimús.

Hagnýtar upplýsingar

Tímasetning: Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 19:30.

Sætaskipan: Raðað er í sæti og því er gott að senda óskir um sætaskipan á netfangið [email protected].

Aldurstakmark: 18 ára aldurstakmark er á viðburðinn nema í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum.

Enn eru nokkrir miðar lausir á hátíðina og því um að gera að drífa sig og tryggja sér sæti fyrir miðnætti annað kvöld (miðvikudaginn 18. nóvember).

Miðasala fer fram hér: Uppskeruhátíð hestafólks 2026.

Framlengdur skráningafrestur í Suðurlandsdeild

Suðurlandsdeildin hóf göngu sína árið 2017 og er samstarfsverkefni Rangárhallarinnar og Hestamannafélagsins Geysis. Keppnin fer fram í Rangárhöllinni á fjórum kvöldum:

Dagsetning

23. febrúar Parafimi og slaktaumatölt (T4)

9. mars Fjórgangur (V2)

23. mars Fimmgangur (F2)

6. apríl Tölt (T3) og skeið í gegnum höllina

Umsóknir nýrra liða

Hvert lið er skipað 2–3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Keppendur skulu ná að minnsta kosti 18 ára aldri á keppnisárinu.

  • Atvinnumenn: Allir keppendur sem uppfylla aldurs- og inngönguskilyrði deildarinnar mega keppa sem atvinnumenn.
  • Áhugamenn: Keppandi má ekki hafa keppt í meistaraflokki síðastliðin tvö ár. Ungmenni sem hafa keppt í meistaraflokksgreinum (V1, F1, T1 eða T2) á Íslandsmóti eða sambærilegum mótum erlendis síðastliðin tvö ár skulu keppa sem atvinnumenn.

Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður, en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur lokaákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngönguskilyrði deildarinnar, þar á meðal skilyrði til að keppa sem áhugamenn.

Allir skráðir knapar skulu keppa að minnsta kosti einu sinni, annars verða 50 stig dregin af liðinu.

Suðurlandsdeildin er fyrst og fremst liðakeppni og verða þrjú stigahæstu liðin verðlaunuð. Jafnframt fer fram einstaklingskeppni þar sem stigahæsti atvinnumaðurinn og stigahæsti áhugamaðurinn verða verðlaunaðir. Reglur um stigagjöf í Suðurlandsdeild eru aðgengilegar á síðu Rangárhallarinnar.

Þátttökugjald er 230.000 kr. Innifalið er skráningargjald á alla viðburði deildarinnar og fjórir æfingatímar í Rangárhöllinni, ein klukkustund í senn.

Umsóknir skulu sendar á [email protected], ásamt upplýsingum um liðsmenn, eigi síðar en 22. nóvember 2026.

Lið með keppnisrétt

Eftirtalin lið eiga keppnisrétt og þurfa einnig að staðfesta þátttöku sína á [email protected] eigi síðar en 8. nóvember 2026:

  • Árbakki / Árbæjarhjáleiga
  • Bakkakot
  • Hestefli
  • Húsasmiðjan
  • Kastalabrekka
  • Krappi
  • Miðkot / Skeiðvellir
  • Raflagnaþjónusta Selfoss
  • Vöðlar / Snilldarverk
Stjórn Suðurlandsdeildarinnar

Stjórnin helst óbreytt frá fyrra ári. Eftirtalin skipa stjórn fyrir keppnistímabilið 2027:

  • Hekla Katharína Kristinsdóttir, formaður
  • Þorgerður Guðmundsdóttir
  • Guðmundur Björgvinsson
  • Rebekka Rut Leifsdóttir Söring
  • Viktor Sigurbjörnsson

Nánari upplýsingar og reglur deildarinnar eru á vef Rangárhallarinnar. Fyrirspurnir má senda á [email protected]

Glæsileg árshátíð hestamannafélaganna Léttis og Funa

Hestamannafélögin Léttir og Funi í Eyjafirði efndu til sameiginlegrar árshátíðar á Akureyri laugardaginn 14. nóvember. Mikil gleði og góð stemning sveif yfir vötnum þar sem hestamenn komu saman utan hesthúsanna til að gera sér glaðan dag, njóta veitinga og efla enn frekar tengslin milli félaganna.

Boðið var upp á glæsilegt hlaðborð og fjölbreytta skemmtidagskrá. Sæþór Már Hinriksson stýrði kvöldinu af röggsemi sem veislustjóri, Karlakór Eyjafjarðar steig á svið og söng fyrir gesti og Danssveit Dósa sá síðan um að halda uppi fjörinu á dansgólfinu fram eftir kvöldi.

Knapar ársins heiðraðir

Á hátíðinni voru knapar ársins 2026 hjá báðum félögum heiðraðir fyrir glæsilegan árangur á keppnisvellinum á liðnu tímabili.

Hjá Létti hlutu eftirtaldir knapar nafnbótina:

Knapi ársins í meistaraflokki: Vera Evi Schneiderchen (Steingrímur Magnússon tók við verðlaununum fyrir hennar hönd)
Knapi ársins í áhugamannaflokki: Mathilde Larsen
Knapi ársins í ungmennaflokki: Auður Karen Auðbjörnsdóttir
Skeiðknapi ársins: Hreinn Haukur Pálsson

F.v. Aldís Ösp Sigurjónsdóttir, Ásdís Karen Hauksdóttir og Mathilde Larsen, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki hjá Létti

F.v. Aldís Ösp Sigurjónsdóttir, Ásdís Karen Hauksdóttir og Mathilde Larsen, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki hjá Létti

F.v. Vignir Sigurðsson, Karítas G. Thoroddsen og Steingrímur Magnússon sem tekur við verðlaunum fyrir hönd Veru Evi Schneiderchen, Knapa ársins 2026 í meistaraflokki hjá Létti.

F.v. Erlendur Ari Óskarsson, Vignir Sigurðsson og Hreinn Haukur Pálsson, Skeiðknapi ársins 2026 hjá Létti

Auður Karen Auðbjörnsdóttir, Knapi ársins 2026 í ungmennaflokki hjá Létti

Hjá Funa voru eftirtaldir knapar heiðraðir:

Knapi ársins í meistaraflokki: Stefán Birgir Stefánsson
Knapi ársins í áhugamannaflokki: Steingrímur Magnússon

Stefán Birgir Stefánsson, Knapi ársins 2026 í meistaraflokki hjá Funa og Steingrímur Magnússon, Knapi ársins 2026 í áhugamannaflokki hjá Funa

Léttir áfram Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Við sama tækifæri tók Hestamannafélagið Léttir á móti staðfestingu á endurnýjun viðurkenningar félagsins sem Fyrirmyndarfélag Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ). Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhenti Viðari Bragasyni, formanni Léttis, viðurkenningarskjal þess efnis.

„Fyrir okkur snýst það að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ fyrst og fremst um að hafa starfið okkar faglegt, vel skipulagt og í stöðugri þróun. Viðurkenningin veitir okkur ákveðið aðhald og hjálpar okkur að tryggja að umgjörðin utan um félags- og íþróttastarfið sé eins góð og kostur er fyrir félagsmenn okkar,“ sagði Viðar Bragason við tilefnið.

Viðar Sigurjónsson frá ÍSÍ afhendir Viðari Bragasyni Formanni Léttis viðurkenninguna.

Stjórnir Léttis og Funa færa öllum þeim sem komu að undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar kærar þakkir, sem og gestum fyrir einstaklega ánægjulegt kvöld. Segir í tilkynningu frá félögunum

Níu manna rýnihópur um framtíð Landsmóta

Bætt hefur verið við einum einstaklingi í rýnihópinn sem stofnaður var til að móta framtíðarsýn Landsmóts.

Stjórn Landssamband hestamannafélaga skipaði í október síðastliðnum sjö manna rýnihóp auk verkefnastjóra sem á að móta sameiginlega framtíðarsýn fyrir Landsmót hestamanna. Á nýafstöðnu landsþingi LH var samþykkt tillaga þess eðlis að stjórn LH myndi bæta við fleiri fulltrúum í starfshópinn til að tryggja að fjölbreyttari sjónarmið fengju rými í þeim störfum vinnuhópsins sem framundan eru. Það vakti athygli þingfulltrúa að af þessum sjö einstaklingum væru fjórir úr hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu, einn frá Sleipni og einn úr Skagfirðingi.

Var brugðist við því og einum aðilum bætt við hópinn, Þórdísi Ingunni Björnsdóttur.

„Við val á fulltrúum í starfshóp um framtíðarsýn Landsmóta var ekki markmiðið að velja fulltrúa einstakra hestamannafélaga heldur var horft til þess að velja fulltrúa hestamennskunnar í heild. Hópurinn er skipaður fólki sem hefur ólíka aðkomu að Landsmóti, í honum eru keppendur, áhorfendur, fulltrúar mótshaldara, fulltrúi kynbótgeirans, aðstandandi keppenda og fulltrúi yngri kynslóðar,“ segir í svari frá stjórn Landssambands hestamannafélaga.

Eftirfarandi viðmið voru höfð til hliðsjónar:

Fulltrúi knapa af Suðurlandi sem bæði hefur tekið þátt í kynbótasýningum og keppnishluta mótsins (Árni Björn Pálsson)
Fulltrúi knapa af Norðurlandi sem bæði hefur tekið þátt í kynbótasýningum og keppnishluta mótsins (Bjarni Jónasson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts í Reykjavík og á Hólum (Áskell Heiðar Ásgeirsson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts á Hellu (Magnús Benediktsson)
Framkvæmdastjóri Landsmóts í Reykjavík (Einar Gíslason)
Fulltrúi sem hefur verið foreldri, aðstandandi og/eða áhorfandi (Petra Mogensen)
Fulltrúi knapa af yngri kynslóð (Eva Kærnested)
Fulltrúi frá kynbótageiranum (Þorvaldur Kristjánsson)
Fulltrúi frá deild hrossabænda innan Bændasamtaka Íslands (Þórdís Ingunn Björnsdóttir)

„Í kjölfar umræðu á Landsþingi var ákveðið að bæta við einum aðila í starfshópinn, deild hrossabænda óskaði eftir að fá að tilnefna þann aðila og það er Þórdís Ingunn Björnsdóttir en hennar snerting við Landsmót er sem áhugamaður og áhorfandi. Þar með er hópurinn nú skipaður níu fulltrúum úr ýmsum áttum í hestamennskunni.“

Kemur einnig fram að starfshópnum er ætlað fyrst og fremst svara spurningunum; hvað er Landsmót, hverju viljum við halda, hverju viljum við sleppa, hvað má alls ekki missa sín og hvað mætti gera meira af?

„Hópnum er ekki ætlað að komast að niðurstöðu um hvar skuli halda Landsmót, heldur hvaða aðstaða þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að halda Landsmót og hvernig á Landsmót að vera. Fyrsti fundurinn í starfshópnum hefur þegar verið haldinn og þar sköpuðust mjög góðar umræður þar sem farið var yfir heildarmyndina um Landsmót.“

Ljóðasamkeppni Eiðfaxa í tilefni dags íslenskrar tungu

Okkar eigin fjórfætti sendiherra, íslenski hesturinn, hefur löngum vakið áhuga unnenda hans á öllu því sem tengist Íslandi og þar með tungumálinu. Því til stuðnings hafa nöfn íslenskra hrossa sem skráð eru í ættbók íslenska hestsins þurft að lúta íslenskum málfarsreglum, hvar í heimi sem hrossið er statt eða fætt. Íslenskt hestanafn hefur bæði menningarlegt og markaðslegt gildi fyrir íslenska hestinn og því hefur hestanafnanefnd starfað í þeim tilgangi að framfylgja því að íslensk hross hafi íslenskt nafn. Þannig hafa mörg hundruð þúsund íslenskir hestar, sem staddir eru utan landsteinanna, breitt út íslenskt mál.

Yrkisefni margra íslenskra höfunda hefur löngum verið hestar enda er tign þeirra og glæsileiki ótvíræður og óhætt að halda því fram að þeir séu jafn samofnir menningu vorrar þjóðar og tungumálið sjálft. Jónas Hallgrímsson er þar enginn undantekning og koma hestar fyrir í nokkrum af ljóðum hans, samanber eftirfarandi tilvitnanir;

Fjallið Skjaldbreiður „Ríð ég háan Skjaldbreið skoða, skín á tinda morgunsól, glöðum fágar röðulroða reiðarslóðir, dal og hól.“

Til herra Páls Gaimard „Þú reiðst um fagran fjalladal á fáki vökrum, götu slétta,“

Gunnarshólmi „Svo fara báðir bræður enn um stund. Skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti.“

Í tilefni dagsins stofnar Eiðfaxi til ljóðasamkeppni og eru allir skáldmæltir (í orði, á borði eða skúffu) lesendur Eiðfaxa beðnir um að senda ljóð (eitt eða fleiri erindi) er tengist hestum á netfangið [email protected]. Sérstök matsnefnd mun svo velja besta ljóðið en sigurvegarinn hlýtur að launum verðlaun og birtingu á vef Eiðfaxa. Hægt er að senda ljóð inn til 1.desember nk.

Jafnvægi hestsins byrjar hjá knapanum

Við gerum miklar kröfur til hestsins. Hann á að vera sterkur, sveigjanlegur, í góðu jafnvægi og tilbúinn til þeirra verkefna sem við ætlum honum. En gerum við sömu kröfur til okkar sjálfra?

Í lokagrein greinaraðar Eiðfaxa, Knapinn sem íþróttamaður, beinum við sjónum að reynslu afreksknapans Árna Björns Pálssonar. Hann hefur um árabil verið meðal fremstu knapa landsins og er menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.

Árni Björn leggur áherslu á að líkamlegt form knapans, jafnvægi og stöðugleiki í þjálfun skipti miklu máli, bæði í daglegum störfum og á keppnisvellinum.

Meira en að sitja á hesti

Starf atvinnuknapans er líkamlega krefjandi og felst í mun fleiru en reiðmennskunni sjálfri. Árni Björn bendir á að tamningar, þjálfun, fóðrun og hirðing séu allt verkefni sem reyni á líkamann.

Með aukinni þekkingu og breyttum vinnubrögðum hafi starfið þó orðið skilvirkara og léttara fyrir tamningamenn en áður.

Sjálfur leggur hann áherslu á að halda sér í góðu líkamlegu formi og æfir fjórum sinnum í viku heima hjá sér. Þar notar hann hlaupabretti, lóð og teygjur.

„Ég hugsa markvisst um heilsuna,“ segir hann og bendir á að gott líkamlegt form hjálpi honum við dagleg störf.

Knapinn þarf að skynja hestinn

Þegar Árni Björn er spurður hvað skipti mestu máli líkamlega hjá góðum knapa nefnir hann ekki styrk eða úthald fyrst.

„Mér finnst mestu máli skipta að knapinn skynji hestinn í gegnum sætið. En ekki bara með höndunum.“

Þar á eftir komi jafnvægi, styrkur og hreyfanleiki.

Hann segist stöðugt leitast við að skilja hestinn og halda eigin jafnvægi. Það sé færni sem þróist með mikilli æfingu.

„Jafnvægi hestsins byrjar í jafnvægi knapans.“

Árni Björn bendir á að knapinn noti ásetuna til að hjálpa hestinum að finna eigið jafnvægi. Með líkamsbeitingu sinni geti hann ýmist stutt við hestinn eða truflað hann.

Þetta sé einnig ástæðan fyrir því að hann leggi áherslu á alhliða líkamsþjálfun og að jafna eigin misstyrk, rétt eins og hann geri við þjálfun hestanna.

Árni Björn Pálsson leggur áherslu á að knapinn geti skynjað hestinn í gegnum sætið og unnið með honum í jafnvægi. Mynd: Eiðfaxi.

Árni Björn Pálsson leggur áherslu á að knapinn geti skynjað hestinn í gegnum sætið og unnið með honum í jafnvægi. Mynd: Henk & Patty

Mótið getur byrjað á morgun

Árni Björn breytir ekki sérstaklega um áherslur í eigin líkamsþjálfun þegar stórmót nálgast. Hann vill vera líkamlega tilbúinn allt árið.

„Ég er í formi. Mótið getur byrjað á morgun mín vegna.“

Að hans mati snýst þetta fyrst og fremst um stöðugleika í þjálfuninni fremur en sérstakan undirbúning rétt fyrir keppni. Hann gætir þó sérstaklega að mataræði og svefni í aðdraganda stórra viðburða.

Árni Björn telur jafnframt að aukin vitund sé meðal knapa um mikilvægi eigin líkamsþjálfunar, ekki síst hjá þeim sem stefna að árangri á hæsta stigi.

Stöðugleiki er lykillinn

Þegar Árni Björn er beðinn um að gefa ungum knöpum ráð varðandi eigin líkama og líkamlega þjálfun eru skilaboðin einföld.

„Taka lítil skref í byrjun, og bæta svo ofan á. Stöðugleiki er lykillinn.“

Hann nefnir einnig mikilvægi reglulegrar hreyfingar, góðs mataræðis og nægs svefns og bætir við einu ráði sem á eflaust erindi til marga:

„Minnka skjátímann!“

Hinn helmingur afreksins

Í greinaröðinni Knapinn sem íþróttamaður höfum við skoðað áhrif líkamsbeitingar knapans á hestinn, mikilvægi styrks og líkamsvitundar og hvernig líkamlegt ástand knapans getur haft áhrif á reiðmennskuna.

Svör Árna Björns draga fram mikilvægan punkt. Líkamleg þjálfun knapans er ekki aðeins undirbúningur fyrir stórmót heldur hluti af daglegri vinnu og langtímauppbyggingu.

Það þurfa ekki allir knapar að vera afreksknapar. En allir geta hugað betur að eigin líkama og því hvernig þeir beita honum í hnakknum.

Við leggjum mikla vinnu í að undirbúa hestinn fyrir þau verkefni sem við ætlum honum. Kannski ættum við að gera sömu kröfur til okkar sjálfra.

Því þegar við setjumst í hnakkinn er hesturinn ekki eini íþróttamaðurinn í sambandinu.

 

Hér má finna greinarnar

Knapinn sem íþróttamaður

Er vandinn alltaf hjá hestinum? | Eidfaxi.is 

Hesturinn speglar knapann | Eidfaxi.is 

Þegar skökk áseta verður að vana | Eidfaxi.is 

Vilji þingfulltrúa að skipað sé í fjölbreyttari rýnihóp

Á ný afstöðnu landsþingi kynnti Ragnhildur H. Magnúsdóttir, verkefnastjóri verkefnisins, fyrir þingfulltrúum hvaða sjö einstaklingar sætu í hópnum og hvaða vinna væri framundan hjá þeim hópi. Vakti það athygli þingfulltrúa að af þessum sjö einstaklingum eru fjórir úr hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu, einn frá Sleipni og einn úr Skagfirðingi.

Þótti sú skipan til marks um það að að jafnræði milli landshluta innan hópsins væri ekki tryggt. Áhugavert er t.d. að enginn sé frá hestamannafélaginu Geysi, þar sem Landsmót á Hellu, umráðasvæði félagsins, hefur oft farið fram. Einnig væri athyglisvert að enginn fulltrúi sé úr röðum félags hrossabænda sem er einn af eigendum Landsmóts ehf.

Í kjölfar þessa skapaðist umræða í landsmótsnefnd á þinginu og lögð var fram tillaga sem var samþykkt, þess eðlis að stjórn LH myndi bæta við fleiri fulltrúum í starfshópinn til að tryggja að fjölbreyttari sjónarmið fengju rými í þeim störfum vinnuhópsins sem framundan eru.

Að þinginu loknu hefur þessi umræða áfram verið á lofti og því sendi blaðamaður fyrirspurn til LH í síðustu viku um það hvort nýjum fulltrúum hafi verið bætt í hópinn. Ekki enn hefur borist svar frá Landssambandinu. Ljóst þykir að áður en sú vinna hefst að móta framtíð Landsmóts hestamanna þarf að tryggja að fulltrúar sem flestra sjónarmiða sitji í hópnum sem falið er að móta þessa framtíð.

Hefur prófað rúmlega 150 hestakyn og velur íslenska hestinn!

Hjónin Alyssa og Josh Mathews leita um þessar mundir að hinum eina rétta hesti. Það er kannski ekki í frásögur færandi – en aðferðarfræðin er það sannarlega. Leitin hefur nú þegar umbreyst í fjóra þætti sem streymt hefur verið víðs vegar um heiminn – og þó er leitin rétt að byrja.

Hjónin koma frá Colorado-fylki í Bandaríkjunum. Josh sinnir kvikmyndatöku og ýmsu kringum-snatti á meðan Alyssa er stjarnan. Þetta er ekki fyrsta ævintýri hennar. Hún hefur nú þegar prófað yfir 150 hestakyn og stefnir að því að prófa þau öll! Um hvert og eitt kyn er framleiddur þáttur og herlegheitin sýnd á Youtube þar sem Alyssa hefur yfir 120.000 fylgjendur.

Það má því með sanni segja að Alyssa hafi tekið hina eftirsóttu „upplýstu ákvörðun“ þegar þau hjónin völdu íslenska hestinn!

Þættirnir heita Riding home – A horse worth the journey eða Reiðin heim – hestur sem er ferðarinnar virði. Og nú ríður á, finnst hesturinn sem er þess virði að flytja heim til Colorado-fylkis?

Hjónin bregða á leik.

Móálóttur með mikið fax

Við áhorf fara reglulegir væmniskrampar um íslenska freðmýrarhjartað, enda um bandarískt sjónvarpsefni að ræða. Þættirnir eru samt áhugaverðir, einlægir og að vissu leyti spennandi. Hver vill ekki vita hvaða hestur verður fyrir valinu? Þetta er eins og að horfa á America’s Got Talent með íslenskum hestum!

Markmið hjónanna er skýrt. Alyssa á sinn íslenska hest en nú stendur til að finna hest fyrir Josh sem er:

– Fimm til sjö vetra
– Geldingur eða hryssa (ekki graðhestur)
– Sterkur og vel byggður
– Rólegur og áreiðanlegur hestur sem allir hafa gaman að
– Með mikið og auðvelt tölt
– Efnilegur til að vaða ár, fara um fjalllendi, skóga og vera í kringum villt dýr (m.a. góður að mæta bjarndýrum í reiðtúr)
– Helst móálóttur með mikið fax (ekki skilyrði og þó …)
– Ekki svakalega dýr (sem sagt, ekki 124.000.000 kr. líkt og verðlaunafjárhæð America’s Got Talent, þótt nákvæmt verðviðmið komi ekki fram).

Og þá hefjast leikar!

Með Eldhestum í fjörunni við Þorlákshöfn.

Enginn Fiat heldur Lamborghini

Í fyrsta þætti heimsækja þau Kjarr og prófa þar nokkra hesta, ræða við Larissu Silju og fá góða punkta um reiðmennsku. Í öðrum þætti ferðast þau með Eldhestum annars vegar yfir Ölfusárósa og út á strönd á milli Eyrarbakka og Þorlákshafnar og hins vegar upp í Reykjadal. Þessi þáttur er óskapleg landkynning. Fjörið hefst svo fyrir alvöru í þriðja þætti þegar Viðar Ingólfsson mætir á svið. Hann skellir karlinum „ekki á neinn Fiat“, líkt og Viðar segir sjálfur, „heldur Lamborghini!“ Höfundur vonar að það teljist ekki til spilliefnis (Höskuldarviðvörunnar), en karlinn lifir af, brosir raunar svo breitt að það glittir í tennur í gegnum þétt alskeggið. Í fjórða þætti heimsækja þau kunningja sína hjá Íslandshestum og prófa þar nokkra reynda fjallahesta.

Fleiri eru þættirnir ekki þegar þetta er skrifað en sögunni vindur fram á Youtube. Skemmst er frá því að segja að fjórði þáttur endar á þeim vangaveltum Josh hversu dýrt verði að kaupa tvo hesta!

Við höldum niðri í okkur andanum og fylgjumst áfram með hjónunum tölta sína leið um landið. Hvaða hestur verður fyrir valinu? Verða þeir kannski tveir? Setur þau einhver á alvöru vekring? Svipar bjarndýri ekki til barnavagns, svona á förnum vegi?

Eitt er víst, enn einu sinni getum við rifnað úr monti af þessum hesti sem við eigum öll saman. Þetta er ekkert höfðatölumont, ekkert „best í heimi miðað við höfðatölu“ eins og okkur þykir gott að segja. Alyssa hefur prófað yfir 150 hestakyn og velur íslenska hestinn. Það hlýtur einfaldlega að þýða að hann sé allra hesta bestur – og hana nú.

Fyrsta þátt má sjá hér:

Meistaradeild Líflands og æskunnar á EiðfaxaTV

Meistaradeild Líflands og æskunnar verður áfram í beinni útsendingu á EiðfaxaTV en undirritaðir voru samningar þess efnis í síðustu viku. Deildin var stofnuð árið 2016 og var fyrst keppt í henni árið 2017. Hugmyndin með deildinni er að skapa keppendum á aldrinum 14-17 ára grunvöll til þess að þróst sem knapar.

Linda Björgvinsdóttir situr í stjórn deildarinnar. „Það að sýnt sé beint frá deildinni hefur mikla þýðingu. Þetta er mjög góð kynning og sýnileiki á því sem við erum að gera og svo er mikilvægt fyrir krakkanna í deildinni að geta horft á sýnar sýningar. Við hvetjum því alla til að horfa á beinar útsendingar frá deildinni í vetur á EiðfaxaTV.“

Alls verða það ellefu lið sem keppa í deildinni í vetur og koma þeir víða að m.a. frá Akureyri og Höfn í Hornafirði til viðbótar við höfðuborgarsvæðið, suður og vesturland. „Fyrirkomulagið verður með örlítið breyttu sniði í vetur en nú þurfa þrír knapar að keppa í hverri grein úr liði en áður voru það allir knaparnir úr hverju liði.“ Segir Linda spurð að því hvort einhverjar breytingar séu á fyrirkomulaginu í vetur.

Í deildinni ver keppt í sjö keppnisgreinum og það eru: Fjórgangur V1 – Fimmgangur F1, Gæðingalist- Tölti T1, slaktaumatölt T2 -gæðingaskeið PP1 og 100 m skeið.

Ný staðsetning á Íslandsmóti fullorðinna og ungmenna árið 2027

Í frétt á heimasíðu LH kemur fram að Stjórn LH hafi falið Hestamannafélaginu Sleipni að halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna sem fram fram dagana 16.-20.júní 2027. En Hestamannafélagið Skagfirðingur fékk mótinu upphaflega úthlutað og eftir samtal um mögulega dagsetningu gaf félagið mótið frá sér, þar sem dagsetning upp úr miðjum júní  gerði þeim erfitt fyrir að halda mótið. Við þökkum Skagfirðingum fyrir að hafa sýnt aðstæðum skilning.

Þá kemur einnig fram í tilkynningu frá LH að Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í Rieden í Þýskalandi dagana 27. júlí- 1. ágúst 2027, eða viku fyrr en venjan er. Í aðdraganda mótsins er Íslandsmótið einn mikilvægasti hlekkurinn þegar kemur að því að velja fulltrúa Íslands til þátttöku á mótinu.

Afreks- og landsliðsnefnd fór þess á leit við stjórn LH að mótið yrði haldið 16.-20. júní 2027 til að tryggja rúman tíma til þess að tilkynna landslið og undirbúa útflutning á hrossunum til Þýskalands, ásamt því að landsliðsknapar fá þannig tækifæri til þess að undirbúa hesta sína á sem allra bestan hátt fyrir HM, en brottför er áætluð þann 19. júlí.