Afhverju gæðingakeppni ?

Gæðingakeppni er elsta keppnisform okkar á íslenska hestinum. Keppt var í gæðingakeppni á fyrsta Landsmótinu árið 1950 en fyrstu heimildir um gæðingakeppni eru frá keppni í Gnúpverjahreppi 13. ágúst 1944 en keppnin fór fram við Sandlækjarós.
Gæðingakeppni hefur átt erfitt uppdráttar síðustu ár en dræm þátttaka á gæðingamótum þegar ekki er Landsmótsár hefur valdið áhyggjum. Gæðingadómarafélag LH birtu myndband í gær í samstarfi við Landssamband hestamannafélaga en tilgangur myndbandsins var að vekja upp umræðu um ágæti keppnisgreinarinnar. „Við höfðum frumkvæði að því, í samstarfi við LH, að búa til þetta myndband og koma þessu í umræðu. Okkur hefur fundist gæðingakeppnin vera á undanhaldi hjá LH og okkur langar að sjá öflugra starf innan sambandsins í að breiða út ágæti keppnisgreinarinnar,“ segir Jón Þorberg Steindórsson, formaður Gæðingadómarafélags LH, en gæðingadómarafélagið hlaut styrk frá Landssambandinu til að búa til kynningarefni fyrir félagið og er þetta myndband partur af því. „Við viljum vekja meiri athygli á keppnisforminu. Þetta er einfalt keppnisform og er í raun elsta keppnisform á íslenskum hestum og við eigum að vera stolt af því og passa upp á greinina. Keppni í gæðingakeppni er að aukast erlendis t.d. er hún að detta inn í Þýskalandi og veldur það okkur áhyggjum að okkur hefur tekist að sofna á verðinum hér heima,“ bætir hann við.
Á Landsmótinu á Hellu í sumar verður boðið upp á keppni í gæðingakeppni og í fyrsta sinn í sögu Landsmóta verður einnig boðið upp á að keppa í öllum íþróttakeppnisgreinunum. „Við verðum að standa vörð um gæðingakeppnina sérstaklega í ljósi þess að íþróttakeppnin er líka að koma inn á Landsmót. Við erum búinn að búa til reglugerð um Íslandsmót í gæðingakeppni sem lögð verður fram á landsþingi LH núna í haust og vonumst við til að hún verði samþykkt,“ segir Jón Þorberg en lagðar verða fram tvær hugmyndir, annars vegar um gæðingkeppni verði bætt við dagskránna á Íslandsmóti eins og það er haldið í dag eða haldið verði sér Íslandsmót í gæðingakeppni síðustu helgina í ágúst. „Við viljum ekki sjá að keppnisgreinin deyji út. Það verður að vera eitthvað annað keppnisform til að keppa í, ekki bara íþróttakeppnin,“ segir Jón Þorberg að lokum.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndbandið Afhverju gæðingakeppni? sem gefið hefur verið út af LH og GDLH.