Álfadís frá Selfossi fallin frá

"Þessi mynd var tekin fyrir fáeinum dögum. Álfadís að fagna því að fá heimsókn eins og hún gerið alltaf. Einstaklega mannelsk" Mynd Heidi Benson.
Álfadís frá Selfossi var felld í gær eftir að hafa slasast illa á afturfæti en þetta kemur fram í tilkynningu frá eiganda hennar, Olil Amble, sem hægt er að lesa hér fyrir neðan.
Álfadís var gæðingamóðir sem skilur eftir sig gríðarstórt spor í íslenska hrossastofninum sem seint verður fylgt eftir.
„Ég er ekki stuðningsmaður þess að leggja út dánartilkynningar hrossa á FB, en í þessu tilfelli langar mig til þess að gera undantekningu þar sem ótrúlega magir eiga hross út af þessari ótrúlegu hryssu sem við fengum hlutverkið að sjá um í 26 ár.“
„Í gær urðum við að fella Álfadísi frá Selfossi eftir að hún hafi skaðað afturfót í girðingu svo illa að ekki þótti annað í stöðunni.“
„Álfadís var í útliti og hegðun eins og ung hryssa allt þar til síðastliðið sumar, þá 25 vetra gömul. Hún fyljaðist en lét svo fylinu og ekki bar það heldur árangur að hafa hana hjá stóðhesti langt fram eftir hausti. Í vetur grenntist hún smám saman þrátt fyrir að vera með annarri gamalli hryssu í topp atlæti og undir eftirliti dýralækna.“
„Álfadís var foringinn í stóðinu og stjórnaði þar með ákveðni og ró, læti og yfirgang var ekki í boði. Eftir fjarveru Álfadísar fyrir nokkrum árum reyndi Katla að eigna sér stöðuna en það var lagað við næsta tækifæri og Álfadís aftur komin í sína stöðu. Það var auðvitað bara tímaspursmál hvenær breyting yrði á og verð ég að segja að ég kveið þeim degi að setja hana aftur í stóðið og sjá hana hugsanlega setta niður, ég held að það hafi hentað henni afar illa.“
„Við teljum það vera mikls gæfu og forréttindi að hafa þessa hryssu í okkar umsjá öll þessi ár, að hafa fengið að upplifa, sjá og skilja að svona persónuleiki og geðslag sé til og að það framræktist ríkulega.“
„Þetta er búið að vera ótrúlega langt og fallegt ævintýri, sem hvergi nærri er búið og þótt við séum sár og búin að gráta úr okkur augun (allavega ég ) þá ætla ég að frábiðjast öllum samúðarkveðjum heldur biðja ykkur sem getið og viljið að samgleðjast með okkur sem hafa hlotið þann heiður að fá að hugsa um þetta hestagull í öll þessi ár.“
„Ég veit ekki hversu margir hafa komið hér við til að láta mynda sig með eða taka mynd af Álfadísi og þætti vænt um að þið mynduð pósta þeim hér að neðan já og bara kveðjur og myndir eða frásagnir af afkomendum hennar og allt sem tengist henni, til þess að minnast og gleðjast yfir lífi þessarar einstöku hryssu og þeim áhrifum sem hún hefur haft og líklegast mun hafa á íslenska hrossarækt.“

Mynd tekin 2013. Álfadís og sonur hennar og Stála frá Kjarri, Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum. Mynd: Gangmyllan