Árni Björn og Gyða Sveinbjörg eru á toppnum í fimmgangi

  • 1. júlí 2021
  • Fréttir

Árni Björn og Katla Ljósmynd/Eiðfaxi

Forkeppni í fimmgangi er nú lokið hér á Íslandsmótinu að Hólum í Hjaltadal en alls tóku 49 knapar þátt í þeirri grein í meistara- og ungmennaflokki.

Í meistaraflokki er það Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II sem hafa þónokkuð forskot á keppinauta sína og er einkunn þeirra 7,73. Í öðru sæti er Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II með 7,50 í einkunn. Ólafur Andri Guðmundsson er í því þriðja á Kolbaki frá Litla-Garði með 7,43. Stutt er á milli í þessari grein og ljóst að það verður hörð keppni um það hver stendur að lokum uppi sem Íslandsmeistari í fimmgangi.

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir er efst í ungmennaflokki á Vísi frá Helgatúni með einkunnina 6,57 skammt undan er Hafþór Hreiðar Birgisson á Verði frá Vindási með 6,50 í einkunn og í því þriðja er Rósa Kristín Jóhannesdóttir á Greip frá Haukadal 2.

Framundan í kvöld er svo kappreiðaskeið og kemur þá í ljós hver verður Íslandsmeistari í 250 og 150 metra skeiði. Hefst keppni í þeim greinum klukkan 18:30 er að sjálfsögðu í beinni á AlendisTv.

Meistaraflokkur – Fimmgangur

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Árni Björn Pálsson / Katla frá Hemlu II 7,73
2 Eyrún Ýr Pálsdóttir / Hrannar frá Flugumýri II 7,50
3 Ólafur Andri Guðmundsson / Kolbakur frá Litla-Garði 7,43
4 Teitur Árnason / Atlas frá Hjallanesi 1 7,40
5 Guðmundur Björgvinsson / Sólon frá Þúfum 7,30
6 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Brynjar frá Bakkakoti 7,23
7 Mette Mannseth / Kalsi frá Þúfum 7,20
8-9 Bjarni Jónasson / Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli 7,17
8-9 Arnar Bjarki Sigurðarson / Álfaskeggur frá Kjarnholtum I 7,17
10 Hanna Rún Ingibergsdóttir / Dropi frá Kirkjubæ 7,13
11-12 Sara Sigurbjörnsdóttir / Flóki frá Oddhóli 7,10
11-12 Benjamín Sandur Ingólfsson / Smyrill frá V-Stokkseyrarseli 7,10
13-14 Vignir Sigurðsson / Evíta frá Litlu-Brekku 7,00
13-14 Þórarinn Eymundsson / Vegur frá Kagaðarhóli 7,00
15 Valdís Björk Guðmundsdóttir / Fjóla frá Eskiholti II 6,97
16 Atli Guðmundsson / Júní frá Brúnum 6,90
17-18 Haukur Baldvinsson / Sölvi frá Stuðlum 6,87
17-18 Viðar Ingólfsson / Starkar frá Egilsstaðakoti 6,87
19-20 Sigurður Vignir Matthíasson / Slyngur frá Fossi 6,80
19-20 Pétur Örn Sveinsson / Hlekkur frá Saurbæ 6,80
21 Jessica Elisabeth Westlund / Frjór frá Flekkudal 6,73
22 Jóhanna Margrét Snorradóttir / Nútíð frá Flagbjarnarholti 6,57
23 Randi Holaker / Þytur frá Skáney 6,17
24-25 Sigursteinn Sumarliðason / Stanley frá Hlemmiskeiði 3 6,10
24-25 Snorri Dal / Engill frá Ytri-Bægisá I 6,10
26 Hans Þór Hilmarsson / Penni frá Eystra-Fróðholti 5,87
27-29 Viðar Ingólfsson / Eldur frá Mið-Fossum 0,00
27-29 Eyrún Ýr Pálsdóttir / Roði frá Brúnastöðum 2 0,00
27-29 Ásmundur Ernir Snorrason / Ás frá Strandarhöfði 0,00

 

Fimmgangur Ungmennaflokkur

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Vísir frá Helgatúni 6,57
2 Hafþór Hreiðar Birgisson / Vörður frá Vindási 6,50
3 Rósa Kristín Jóhannesdóttir / Greipur frá Haukadal 2 6,43
4-5 Hákon Dan Ólafsson / Júlía frá Syðri-Reykjum 6,40
4-5 Glódís Rún Sigurðardóttir / Kári frá Korpu 6,40
6-7 Katla Sif Snorradóttir / Gimsteinn frá Víðinesi 1 6,37
6-7 Arnar Máni Sigurjónsson / Blesa frá Húnsstöðum 6,37
8 Þorvaldur Logi Einarsson / Dalvar frá Dalbæ II 6,20
9-12 Egill Már Þórsson / Stormur frá Björgum 4 6,03
9-12 Thelma Dögg Tómasdóttir / Bósi frá Húsavík 6,03
9-12 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Straumur frá Hríshóli 1 6,03
9-12 Sigrún Högna Tómasdóttir / Sirkus frá Torfunesi 6,03
13 Herjólfur Hrafn Stefánsson / Kvistur frá Reykjavöllum 6,00
14 Hafþór Hreiðar Birgisson / Von frá Meðalfelli 5,97
15 Benedikt Ólafsson / Leira-Björk frá Naustum III 5,93
16 Kristófer Darri Sigurðsson / Ás frá Kirkjubæ 5,83
17 Glódís Rún Sigurðardóttir / Rosi frá Berglandi I 5,60
18 Þorvaldur Logi Einarsson / Sóldögg frá Miðfelli 2 5,53
19 Embla Þórey Elvarsdóttir / Tinni frá Laxdalshofi 5,27
20 Hrund Ásbjörnsdóttir / Sæmundur frá Vesturkoti 5,20

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar