Bergvík: Sérfræðingar í að bjarga sögunni

  • 17. mars 2026
  • Fréttir
Viðtal við Ólaf Guðmundsson í Bergvík

Eins og áskrifendur EiðfaxaTV hafa tekið eftir og fengið að njóta er mikið af gömlu hestatengdu efni að finna á Gullkistu Eiðfaxa og þangað inn langar forsvarsmönnum að halda áfram að safna inn áhugaverðu og sögulegu efni. Hestamenn hafa í gegnum tíðina verið duglegir að taka upp myndefni af allskyns viðburðum í hestamennskunni. Ef fólk hefur hug á því að varðveita þetta efni þarf að koma því á nútímalegt form er um að gera að nýta sér þjónustu fyrirtækisins Bergvík.

Bergvík hefur verið leiðandi í vinnslu myndefnis allt frá árinu 1981 og býr yfir áratuga reynslu af samstarfi við stóraðila á borð við BBC og Disney. Fyrirtækið sérhæfir sig í að yfirfæra gamalt efni á stafrænt form og býr yfir tækjabúnaði til að bjarga nánast öllu, hvort sem um er að ræða 8mm eða 16mm filmur, skyggnur, VHS-spólur eða hljóðsnældur.

Arnar Bjarki og tökumenn Eiðfaxa kíktu í heimsókn til Ólafar Guðmundssonar í Bergvík sem sagði þeim nánar frá starfseminni. Viðtalið má horfa á hér að neðan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar