Eidfaxi.is
  • Forsíða
  • Fréttasafn
  • Eiðfaxi TV
  • Dagskrá
  • Leit
  • Minn Eiðfaxi
  • Áskrift
Kálfhólum 21 800 Selfoss Kt: 671109-1980

Hafðu samband

[email protected]
   

„Tilhlökkun að fara suður og taka þátt í Degi reiðmennskunnar“

  • 16. mars 2026
  • Fréttir

Árlega útskrifast reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum. Reiðkennaraefni skólans mæta nú suður á Dag Reiðmennskunnar um næstu helgi

Dagur Reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks

Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks fer fram laugardaginn 21. mars næstkomandi. Á Degi reiðmennskunnar eru það reiðkennaraefni Háskólans á Hólum sem halda sýnikennslu. Sýningin hefst klukkan 14:00 og er frítt inn á sýnikennsluna.

Alls eru það 19 knapar talsins sem koma að norðan frá Hólum í Hjaltadal með hesta sína. „Gestir geta búist við fræðandi og skemmtilegri sýnikennslu þar sem við sýnum frá uppbyggingu góðrar þjálfunar á íslenska hestinum. Stemningin í hópnum og það er mikil tilhlökkun að fara suður og taka þátt í Degi reiðmennskunnar. Það er gaman að sá svona tækifæri til þess að sýna frá því sem við höfum verið að vinna að og vonumst við til þess að sem flestir komi og taki þátt í deginum með okkur.“ Segir Viktoría Von Ragnarsdóttir sem er í forsvari fyrir reiðkennaraefnin í samtali við Eiðfaxa.

Stórsýning Fáks

Um kvöldið fer svo fram Stórsýning Fáks sem hefst klukkan 20:00 og að sýningu lokinni verður stuð í anddyri reiðhallarinnar þar sem trúbadorinn Sigvaldi Helgi Gunnarsson heldur uppi stuði.

Miðasala hefst þriðjudaginn 17. mars í Hesta Kaupfélaginu í Víðidali en þar er opið á milli 15:00 og 18:00, virka daga. Einnig verður miðasala á stórsýningu í reiðhöllinni á laugardeginum frá klukkan 14:00 og í hurð um kvöldið.

Miðaverð er 3.500 kr. á fullorðna, 2.500 kr. fyrir unglinga og ungmenna og 1.500 kr fyrir börn 8-13 ára.

 

Gísli Guðjónsson

Höfundur

Gísli Guðjónsson

[email protected]

Deila frétt

Mest lesið

  • Svíþjóð Margareterhof er selt

    • 5. nóvember 2026
    • Fréttir
  • Nær dauða en lífi í Fnjóská

    • 12. nóvember 2026
    • Fréttir
  • Eldhestar komnir á sölu eftir 40 ára farsælan rekstur

    • 7. nóvember 2026
    • Fréttir
  • Kveikurinn brennur út í Ástralíu

    • 18. nóvember 2026
    • Utan úr heimi Fréttir
  • Fóstur og hugarfóstur

    • 29. október 2026
    • Fréttir
  • Landsamband hestamanna Átta hlutu gullmerki LH

    • 30. október 2026
    • Fréttir

Nýjasta tölublað

Áskrift

Tengdar greinar

Nýir eigendur á Feti í Rangárvallasýslu

Markmiðið að hafa "öll járn í eldinum"

  • 25. nóvember 2026
  • Fréttir
Lesa nánar

Suðurlandsdeildin Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV

Spennandi tímabil framundan í Suðurlandsdeildinni

  • 23. nóvember 2026
  • Fréttir
Lesa nánar

Eiðfaxi TV Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV

Í þáttaröðinni heimsækir Gísli Guðjónsson hestamenn og fræðist um störf þeirra og bakgrunn

  • 23. nóvember 2026
  • Fréttir
Lesa nánar

EiðfaxiTV

Skráðu þig núna og horfðu á EiðfaxaTV í uppáhalds tækinu þínu! EiðfaxiTV er fáanlegur á iOS, Android, AppleTV, Android TV og SamsungTV!
Áskrift
Eidfaxi.is
Kálfhólum 21 800 Selfoss Kt: 671109-1980

Hafðu samband

[email protected]

Fréttir & greinar

  • Fréttir
  • Sjónvarp
  • Á Kaffistofunni

Eiðfaxi

  • Um Eiðfaxa
  • Tölublöð
  • Eiðfaxi TV
  • Dagskrá EiðfaxaTV
  • Skilmálar / Terms
  • Auglýsingadeild

    • Virka daga: 11:00 - 14:00
    • [email protected]
  • Skrifstofa

    • Virka daga: 11:00 - 14:00
    • [email protected]
Secret Link